Enginn slaki gefinn Valur Páll Eiríksson skrifar 17. mars 2026 10:01 Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands. Vísir/Ívar Fannar Snorri Steinn Guðjónsson segir mikla spennu fyrir komandi landsleikjum Íslands við Svíþjóð á fimmtudag og laugardag. Hann leggur áherslu á að nálgast verkefnið af sama krafti og önnur. „
Það er alltaf gaman að koma saman og mín upplifun er sú að það sé alltaf góð stemning hjá drengjunum. Vissulega er aðeins gaman núna eftir gott mót og að fá að spila leiki hérna heima, sem er bara skemmtilegt,“ segir Snorri á fyrstu æfingu landsliðsins í gær. Nokkra vantaði þá enn í hópinn, til að mynda Gísla Þorgeir Kristjánsson og Viggó Kristjánsson, sem höfðu spilað í þýsku deildinni á sunnudag. Hópurinn kom allur saman í gærkvöld. „Í rauninni ákvað ég að gera það þannig núna. Það voru töluverður fjöldi að spila í gær og í stað þess að bruna heim á æfingu seinni partinn beint af flugvellinum, þá fá þeir smá andrými. Svo hittumst við í kvöld og borðum saman,“ segir Snorri. Yngri menn innan um atvinnumenn Þónokkra yngri leikmenn mátti sjá á æfingu liðsins í gær. Drengir úr U20 landsliðinu fengu þar tækifæri til að máta sig við atvinnumenn Íslands. „Það er heill hellingur og ég hef svo sem alveg gert það inn á milli. Að leyfa strákum hér heima til að fá tækifæri til að kynnast þessu. Þeir eru í fleiri kantinum í þetta skipti og HM undankeppni ekki fram undan,“ „Þetta eru margir strákar úr 20 ára liðinu. Það er gaman fyrir mig og okkur í teyminu að sjá þessa stráka á æfingum og í samanburði við okkar bestu leikmenn,“ segir Snorri. Lúxusstaða Mikill lúxus sé að fá tvo leiki við stórþjóð hér heima. Ísland mætir Svíþjóð að Hlíðarenda klukkan 19:30 á fimmtudagskvöld og svo klukkan 17:00 í Kaplakrika á laugardaginn kemur. „Ef við skoðum söguna þá hefur þetta ekki verið daglegt brauð, það hefur reynst erfitt að fá lið hingað heim. Þetta er geggjað fyrir okkur, fyrir áhorfendur og handboltaáhugafólk að fá tvö heimsklassalið að spila á okkar heimavelli. Okkur hlakkar mikið til,“ segir Snorri sem skynjar spennu í hópnum. „Allir þessir strákar vilja koma heim. Ég þekki það sjálfur frá því að hafa verið leikmaður og búsettur erlendis að það er gott og gaman að koma heim. Maður saknar þess alltaf erlendis að vera ekki hérna. Þetta kærkomið fyrir þá að kúpla sig út úr sínu erlendis að spila fyrir framan fulla höll og hitta strákana,“ segir Snorri. Sterkasta liðið á að sýna alvöru frammistöðu En hvað vill landsliðsþjálfarinn fá út úr komandi verkefni? „Ég vil klárlega fá góða frammistöðu og mun leggja áherslu á að við séum að gera þetta almennilega. Að það sé einbeiting í hópnum og við séum að nýta tímann. Að fara að slaka á vegna þess að það er engin undankeppni fram undan væri bara lélegt og eitthvað sem ég vil ekki sjá. Það er ekkert að því að það sé létt yfir þessu, þar sem þetta eru æfingaleikir og allt það,“ „En við þurfum að halda áfram að vinna í okkar málum. Ég valdi mitt sterkasta lið og það er hellingur sem við getum drillað til að halda áfram að bæta okkur. Hver gluggi er mikilvægur sama hvers eðlis hann er. Við þurfum að gera þetta vel,“ segir Snorri. Geta sýnt sig og sannað Þá gefst ákveðnum leikmönnum tækifæri til að sýna sig og sanna. Til að mynda Stiven Tobar Valencia og Sigvaldi Björn Guðjónsson, sem voru ekki í lokahópnum fyrir EM í janúar. Þó Sigvaldi hafi vissulega komið inn í hópinn undir lok mótsins vegna meiðsla í íslenska hópnum. „Hver gluggi er tækifæri til þess, það segir sig sjálft. Við erum með mjög sterkan kjarna og við erum með frábæra leikmenn sem mynda hann. En fyrir hvert stórmót er ég með 20 til 25 leikmenn sem eru að berjast um sæti í lokahópnum,“ „Hann er yfirleitt bara 18 leikmenn. Ef við tökum síðasta hóp, þá var erfitt að velja hann og erfitt að skilja menn eins og Stiven og sigvalda eftir. Það segir sig sjálft að þegar við komum saman er gott fyrir leikmenn að sýna sig og standa sig vel,“ segir Snorri Steinn. Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Snorri ræðir Svíaleikina
Landslið karla í handbolta Mest lesið „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Íslenski boltinn Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Máttu ekki synja dansara vegna ásakana um perraskap Sport Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúla 1 Kempur reyna fyrir sér í fyrsta mílu-hlaupinu Sport Fékk sér tebolla með Ratcliffe Enski boltinn Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Sjá meira