Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 13:00 Max Verstappen á ekki von á því að Red Bull nái í mörg stig í kínverska kappakstrinum á morgun. getty/Mark Sutton Hollenski ökuþórinn Max Verstappen er langt frá því að vera hrifinn af bíl Red Bull og segir ömurlegt að keyra hann.
Önnur keppni tímabilsins í Formúlu 1 fer fram í Sjanghaí í Kína á morgun. Verstappen náði ekki í stig í sprettkeppninni í morgun og endaði í 8. sæti í tímatökunni. Hann var næstum einni sekúndu á eftir Mercedes-manninum Kimi Antonelli sem verður á ráspól á morgun. Hljóðið var ekki gott í Verstappen eftir tímatökuna í morgun. Hann sagði að Red Bull-bíllinn væri ekkert betri en í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu um síðustu helgi. „Við breyttum öllu en þetta var nákvæmlega eins svo ég á von á því sama í keppninni,“ sagði Hollendingurinn. „Það er ótrúlega erfitt að keyra. Það er ekkert jafnvægi. Hver einasti hringur er þrekraun og þetta er mjög erfitt. Í hvert sinn sem ég fór annan hring á dekkjasetti var þetta ömurlegt. Í hreinskilni sagt held ég að þetta verði frekar erfitt á morgun.“ Verstappen ítrekaði að breytingarnar sem gerðar hefðu verið á bílnum hefðu engu skilað. „Áður fyrr snerum við stundum öllu á hvolf og það virkaði. En núna virkar ekkert sem er ekki gott. Ég get ekki aukið hraðann,“ sagði heimsmeistarinn fyrrverandi. Verstappen endaði í 6. sæti í ástralska kappakstrinum um síðustu helgi. Nýi samherji hans, Isack Hadjar, þurfti þá að hætta keppni eftir tíu hringi vegna vélarbilunar. Bein útsending frá kínverska kappakstrinum hefst á Sýn Sport Viaplay klukkan 06:30 á morgun.
Akstursíþróttir Mest lesið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Íslenski boltinn Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Íslenski boltinn Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Fleiri fréttir Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira