FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild Þorsteinn Hjálmsson skrifar 12. mars 2026 22:00 FH sigldi örugglega fram úr í seinni hálfleik. Vísir/Anton Brink ÍR er fallið úr Olís-deild karla. Varð það ljóst eftir sigur FH á ÍR í Kaplakrika í kvöld í lokaumferð deildarinnar. Lokatölur 34-28. FH endar því í öðru sæti deildarinnar og mun mæta Íslandsmeisturum Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem fram undan er. Mikið var undir fyrir bæði lið í leiknum í kvöld. Gat ÍR bjargað sér frá falli með sigri og hagstæðum úrslitum og FH gat hampað deildarmeistaratitlinum með sigri og einnig hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum. FH komst í 3-1 eftir um fimm mínútna leik og var þannig ára yfir liðinu eins og þeir ættu von á að malla fram úr ÍR strax í upphafi. ÍR-ingar voru þó ósammála því og voru í humátt á eftir forystu FH. Á 22. mínútu komst ÍR yfir og tók þá Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, strax leikhlé. Staðan 11-12. Fram að hálfleik skoruðu liðin á víxl án þess að mörg færi færu forgörðum. Allt var því jafnt í hálfleik, 17-17, og enn von fyrir ÍR að forðast fall og fyrir FH að hampa deildarmeistaratitlinum, þó að treysta þyrfti á úrslit í öðrum leikjum. ÍR-ingar hófu síðari hálfleikinn einum færri vegna ólöglegrar skiptingar í blálok fyrri hálfleiks. Reyndist það dýrt þar sem FH refsaði ÍR strax í upphafi síðari hálfleiks með auðveldum mörkum. Ekki bætti úr skák að eftir fyrstu sex mínúturnar í síðari hálfleik dúndraði Jökull Blöndal Björnsson, einn besti leikmaður ÍR, boltanum í höfuð Jóns Þórarins Þorsteinssonar, markvarðar FH, sem þýddi að ÍR var einum færri strax aftur í aðrar tvær mínútur. Á þessum kafla myndaði FH rúmgóða forystu sem þeir héldu vel í restina af leiknum. ÍR kom með nokkur áhlaup að þeirri forystu en heimamenn létu það þó ekki á sig fá og gengu frá leiknum fagmannlega. Atvik leiksins Þegar hálfleiksflautið gall þá átti FH fríkast. Fyrirliði ÍR, Sveinn Brynjar Agnarsson, sem er fremur lágvaxinn, hljóp þá út af til þess að koma Eyþóri Ara Waage, sem er höfðinu hærri, inn á völlinn til þess að standa í varnarveggnum. Slíkt er bannað eftir að hálfleiksflautið hefur ómað. Því fékk Eyþór Ari tveggja mínútna brottvísun. Sú brottvísun reyndist dýrkeypt þar sem ÍR gekk hræðilega í þeirri undirtölu og FH tók öll völd til sín og lét forystuna eftir þetta ekki af hendi. Stjörnur og skúrkar Gunnar Kári Bragason var frábær á línunni hjá FH, í fjarveru Jóns Bjarna Ólafssonar, með sex mörk úr jafnmörgum skotum. Jón Þórarinn Þorsteinsson kom einnig með frábæra innkomu inn í mark FH í síðari hálfleikinn og varði tæplega 55% allra skota sem hann fékk á sig. Hjá ÍR skoraði Jökull Blöndal Björnsson tólf mörk og er ansi ólíklegt að við sjáum hann spila með ÍR á næstu leiktíð miðað við hans gæði. Enginn skúrkur í kvöld, en klaufi kvöldsins verður að vera Sveinn Brynjar fyrirliði ÍR fyrir það að skipta sér út af þegar hann mátti það ekki. Reyndist það dýrkeypt. Dómarar Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson sáu um að dæma þennan leik og gerðu það vel og fagmannlega. Stígandi í þeirra hlutverki sem dómarar á þessari leiktíð. Stemning og umgjörð Fínasta mæting var hjá FH-ingum á þennan leik, ekki eins öflug mæting hjá gestunum. FH-ingar fengu þó ekki að fagna neinum titli í kvöld, sem stuðningsmenn þeirra hefðu gjarnan viljað gera. Því var stemningin nokkuð lágstemmd að leik loknum. Viðtöl Sigursteinn Arndal: „Ætla ekki að vera ósáttur með níu sigra í röð“ „Við vorum bara að mæta flottu ÍR-liði sem var að berjast fyrir lífi sínu og þeir gerðu það vel og við vorum bara í vandræðum varnarlega í fyrri hálfleik. Við vorum ekki góðir þar en við fórum aðeins yfir þau mál í hálfleik og mér fannst svona annar kraftur í okkur í seinni hálfleik og þá sérstaklega varnarlega sem skóp þá sigurinn,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH eftir sigur sinna manna á ÍR. FH endaði í öðru sæti deildarinnar. Er Sigursteinn sáttur með þá niðurstöðu. „Já, úr því sem komið er þá ætla ég ekki að vera ósáttur með að það séu komnir níu sigrar í röð og við bara búnir að ná vinna vel í okkar málum. Lærdómurinn, maður er náttúrulega bara svekktur með að vinna ekki deildarmeistaratitilinn af því að ég ætla ekkert að neita því að það er bara titill sem manni þykir rosalega vænt um, því það þýðir að maður hefur gert gott tímabil. Við gefum of mörg stig á fyrstu metrunum sem er að bíta okkur aðeins í rassinn núna en ég er sáttur með þann stíganda sem að er í liðinu.“ Fram undan er úrslitakeppnin sjálf. Hvert er framhaldið hjá FH fram að henni? „Nú ætlum við að taka okkur gott helgarfrí og njóta þess aðeins að slappa af. Við þurfum svo að halda vel á spöðunum í landsliðspásunni og við missum einhverja stráka í unglingalandsliðin, en við þurfum bara að hugsa vel um okkur og sjá til þess að við séum klárir þegar úrslitakeppnin fer af stað. Úrslitakeppnin er ákveðið mómentum, það þarf að vera stemning og við þurfum að fá allt félagið með okkur og það er margt sem þarf að gerast bæði hjá okkur inni á gólfi og svo hérna í félaginu.“ Olís-deild karla FH ÍR