Þór Þ. - Ár­mann 74-79 | Ár­menningar skildu Þórsara eftir í fallsæti

Andri Már Eggertsson skrifar
þór þ hulda
vísir/Hulda Margrét

Ármann sótti einn mikilvægasta sigur tímabilsins til Þorlákshafnar og skildi Þór eftir í fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir af Bónus deild karla í körfubolta. Lokatölur 74-79 fyrir Ármanni eftir æsispennu.

Með þessum sigri stökk Ármann upp í 10. sæti deildarinnar en skildi Þór eftir í 11. sætinu. Liðin eru jöfn að stigum en Ármann er með betri innbyrðis úrslit og Þórsarar stefna hraðbyrum niður í næstefstu deild. 

Ármann hefur verið í fallsæti nánast allt tímabilið en átti frábæran endasprett í kvöld, eftir að hafa verið vel undir í fjórða leikhluta. 

Nánari umfjöllun og viðtöl eru  væntanleg á Vísi von bráðar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira