Varðveisla Guðmundarlundar Beitir Ólafsson skrifar 10. mars 2026 10:00 Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kópavogs og algjör perla fyrir fjölskyldur og ungmenni. Lundinum er einstaklega vel við haldið af Skógræktarfélagi Kópavogs sem heldur nú úti flottu leiksvæði fyrir börn, mini-golf velli, frisbí-golf velli, útigrillum, salernisaðstöðu og hefur Skógræktarfélagið m.a. staðið fyrir Ævintýri í Jólaskógi við góðar undirtektir. Talið er að um 200.000 manns heimsæki Guðmundarlund árlega. Nú er þó svo komið að ekki er hægt að fresta mikilvægri fjárfestingu á svæðinu sem hefur setið á hakanum allt of lengi. Rafmagns- og vatnsæðar eru ekki nægilega sverar til þess að anna eftirspurn. Þetta er ekki bara öryggismál heldur hefur þetta einnig áhrif á vænleika á útleigu veislusalar svæðisins. Rafmagni slær ítrekað út og svarar vatnsæðin ekki magni og þrýstingi. Í sinubrunanum um daginn ætlaði slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að tengjast brunahananum í lundinum en þurftu að nota dælu svo nægt vatnsmagn og þrýstingur næðist upp til að geta sinnt slökkvistarfinu. Húsakostir á svæðinu eru tveir, annarsvegar Gamla Húsið sem Skógræktarfélagið á og er með afnot af fyrir sína starfsemi og hinsvegar nýtt félags- og þjónustuhús sem er jafnframt fræðslusetur og veislusalur, Nýja Húsið. Gamla húsið stendur undir nafni og er bara tímaspursmál hvenær það verður ónothæft. Þessu hafa starfsmenn svæðisins og stjórnendur í leik- og grunnskólum áhyggjur af. Á svæðinu hefur útikennsla aukist til muna og fá börn í Kópavogi mikilvæga útivist, fræðslu og tengingu við náttúruna og hafa nýtt Gamla húsið til að hita mat og sem aðsetur ef t.d. barn meiðir sig eða veður verður vont. Er húsið einnig aðstaða starfsmanna og sumarstarfsmanna. Skógræktarfélag Kópavogs hefur horft til gámaeininga í eigu Kópavogsbæjar sem nýttar hafa verið við Þingholtsskóla og Kársnesskóla sem mögulegan arftaka. Kennarar bera gámunum góða sögu og er tilvalið að nýta það sem bærinn á nú þegar. Við í Miðflokknum í Kópavogi teljum að svara verði kalli á úrbótum á svæðinu í þágu Kópavogsbúa. Þegar horft er á heildarmyndina og til langs tíma þá snýst þetta um meira en bara að viðhalda grænu svæði. Þetta snýst um að auka aðgengi barnana okkar á öllum stigum skólakerfisins að útiveru og fræðslu, lýðheilsumál fyrir fólk á öllum aldri, samverustundir fjölskyldna og vina, öryggismál og margt fleira. Guðmundarlundur er án efa eitt besta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og hefur skapað sér stóran sess í hjarta íbúa, á Skógrækarfélag Kópavogs stóran þátt í því og skilið miklar þakkir fyrir. Það er löngu tímabært að setjast niður og skipuleggja þetta fallega svæði til framtíðar. Varðveitum Guðmundarlund, hlustum á ákallið og framkvæmum í þágu Kópavogs. Höfundur er byggingarverktaki og í 3. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Sjá meira