KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Árni Gísli Magnússon skrifar 9. mars 2026 21:16 Frá leik FH fyrr á tímabilinu. Vísir/Anton Brink FH tryggði sér endanlega heimavallarrétt í úrslitakeppni Olís-deildar karla, eftir 25-30 sigur gegn KA norðan heiða í 21. umferð deildarinnar og eygja enn von á deildarmeistaratitlinum. KA þarf sigra granna sína í Þór og treysta á önnur úrslit til að fá heimaleikjarétt. Þá að leiknum í kvöld. Gestirnir frá Hafnarfirði skoruðu fyrsta markið en heimamenn mættu ákveðnir til leiks og komust 6-3 yfir eftir um tíu mínútna leik og voru að spila sterkan varnarleik gegn feikna sterkri sóknarlínu FH og var Ágúst Elí að verja vel fyrir aftan. FH komst loks aftur yfir á 26. mínútu, 10-11, og var þá varnar- og sóknarleikur liðsins að styrkjast ásamt hjálp frá Jóni Þórarni í markinu sem varði átta bolta í hálfleiknum. FH leiddi með tveimur mörkum í hálfleik eftir að hafa í raun fengið lokamarkið að gjöf eftir illa framkvæmt aukakast hjá KA mönnum sem töpuðu boltanum og Ómar Darri skoraði í tómt markið hinu megin.Staðan i hálfleik 12-14 FH í vil. Gestirnir mættu af krafti til leiks í síðari hálfleik og var staðan skyndilega orðin 12-19 eftir tæpar sjö mínútur og KA menn réðu á þessum kafla illa við kraftmikinn sóknarleik gestanna með skyttuna ungu, Ómar Darra Sigurgeirsson, í fararbroddi. KA menn voru einnig að fara illa með boltann í sínum sóknum sem hjálpaði alls ekki til. Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, tók tvö leikhlé með stuttu millibili og náðu KA menn fínu áhlaupi og minnkuðu muninn í þrjú mörk, 18-21 og 19-22 en nær komust þeir ekki og FH-ingar gáfu bara í og sigldu að lokum öruggum sigri heim. Lokatölur 25-30. Atvik leiksins Verð að taka fyrir bara fyrstu sjö mínúturnar í síðari hálfleik þar sem FH skorar fyrstu fimm mörkin og kemst í sjö marka forystu og sem gerði KA mönnum virkilega erfitt fyrir að komast til baka sem þeir gerðu svo ekki. Stjörnur og skúrkar Ómar Darri Sigurgeirsson var frábær í liði FH og skoraði sjö mörk úr tólf skotum. Virkilega mikið spunnið í þennan 18 ára pilt. Símon Michael skoraði einnig sjö mörk, þar af þrjú víti, og átti góða innkomu í vinstra hormið í síðari hálfleik. Markmenn FH áttu góðan leik og var Jón Þórarinn með 10 varða bolta og 34% markvörslu en Daníel Andrésson spilaði stóran hluta síðari hálfleiks og varði 6 bolta sem gerir 50% markvörslu. Ágúst Elí var frábær fyrir KA í fyrri hálfleik og var þá kominn með sjö varða bolta en endaði í tólf boltum og 29% markvörslu. Sóknarleikurinn gekk ekki nægilega vel á stórum pörtum hjá heimamönnum en Dagur Gautason skoraði sex mörk og Einar Birgir var með fjögur. Dómarinn Ég veit að KA menn vildu fá talsvert fleiri víti í dag og eiga þar eflaust eitthvað til síns máls en að öðru leyti var leikurinn ágætlega dæmdur. Stemning og umgjörð Fín mæting og alltaf stemning og læti í KA-heimilinu og engin undantekning var á því í kvöld. Viðtöl Olís-deild karla KA FH