Samferða á föstunni Hjalti Jón Sverrisson, Árni Þór Þórsson, Guðný Hallgrímsdóttir, Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, Kristín Pálsdóttir og Toshiki Toma skrifa 8. mars 2026 21:33 Um föstutímann í kirkjunni Með öskudeginum 18. febrúar hófst hin svokallaða sjöviknafasta eða langafasta í Þjóðkirkjunni. Þá eru fjörutíu dagar til páska. Fastan er tími þar sem við erum hvött til íhugunar og að einbeita okkur að því sem okkur finnst raunverulega skipta máli í lífinu. Þessi tími er ekki til þess að brjóta okkur sjálf niður, heldur byggja okkur upp. Í okkar nútíma samfélagi er mikilvægt að við stöldrum reglulega við, skoðum á hvaða leið við erum bæði sem manneskjur og samfélag og ef þörf þykir endurskoða áherslur okkar og leiðrétta stefnuna. Við þurfum öll á því að halda að hlúa að okkur andlega, að byggja okkur upp, næra okkur og finna innihald og tilgang í lífinu. Stóra spurningin ,,Hvað færir mig nær Guði?” Við sem störfum innan sérþjónustu Þjóðkirkjunnar þekkjum það að takast á við merkingarleitina með fólki úr ólíkum áttum. Þegar sorg og áföll koma inn í líf okkar verða tilvistarspurningarnar áleitnari en ella og mikil tilvistarleg glíma getur átt sér stað. Það er dýrmætt að vera treyst til þess að vera samferða fólki á slíkum stundum í lífinu, oftar en ekki á ögurstundum. Sá heildræni mannskilningur sem kristin trú stendur fyrir horfir til þess að manneskjan hefur margvíslegar þarfir. Farsæld okkar er og verður mest þegar leitast er við að hlúa að og sinna öllum þáttum mannlegs lífs; líkamlegum þörfum, félagslegum, hugrænum/sálrænum og andlegum (e. spiritual). Í okkar daglega lífi hættir okkur því miður til þess að gleyma eða huga ekki nóg að andlegum þörfum okkar og rækta okkur á því sviði. Tími samfélagsins til íhugunar og iðrunar Hver kannast ekki við það að fylgjast með ungu barni prófa sig áfram á þroskabraut lífsins? Stundum kemur það fyrir að við hrösum en þá er einmitt svo dýrmætt að eiga stuðning og hvatningu sem hvetur okkur til að rísa upp á ný. Samfélög ganga einnig í gegnum regluleg vaxtarferli. Við horfum í baksýnisspegilinn sem samfélag og oft sjáum við margt sem hefði betur mátt fara. Ekki síst þegar kemur að þeim sem samfélagið hefur komið fyrir á jaðrinum. Hvernig stöndum við sem samfélag að umönnun barna okkar og unga fólksins, aldraðra, þeirra sem eiga við veikindi að stríða, fatlaðra og þroskahamlaðra, fanga sem og þeirra sem hafa flúið heimili sín og lönd? Hvernig hlúum við hvert að öðru og að samferðafólki okkar? Þegar við rýnum til gagns sjáum við að margt hefur verið gert vel en við efumst ekki um að við viljum sannarlega gera betur, bæta, læra af hugsanlegum mistökum, þroskast og gera jafnvel í einhverjum tilfellum iðrun og yfirbót. Dagarnir sem framundan eru nú á föstutímanum geta verið tækifæri fyrir okkur sem samfélag að íhuga saman hvort og hvernig við höfum gengið til góðs götuna fram eftir veg. Í þeirri sjálfsskoðun getum við horfst í augu við það sem er gott en einnig það sem er síðra og lagt okkur fram um að leiðrétta, lagfæra og gera betur. Við öll berum okkar ábyrgð, við erum samferðafólk þrátt fyrir að við erum ólík, höfum misjafna upplifun eða skoðanir. Betur má ef duga skal Þegar kemur í ljós í gegnum íhugunarferli að vissulega sé eitthvað sem framkallar eftirsjá, sársauka, þegar við finnum fyrir þessari djúpu iðrun sem samfélag, þá fáum við tækifæri til yfirbótar. Slíkt ferli er oft síður en svo einfalt og yfirbót ætti alltaf að nálgast sem valdeflandi ferli fyrir þann sem leitast er við að bæta brotin gagnvart. Það er mikil gjöf að fá að takast á við það verkefni að leita leiða til að þroskast og dýpka á andlegri vegferð okkar. Víða getum við mætt visku á vegferð okkar. Þjóðsöngur okkar Íslendinga sækir í 90. sálm Saltarans. Í þeim sálmi segir meðal annars: Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta. (Sl.90:12) Höfundar eru hér upptaldir: Sr. Árni Þór Þórsson, prestur innflytjenda og flóttafólks Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sjúkrahúsprestur Þjóðkirkjunnar Sr. Hjalti Jón Sverrisson, fangaprestur Sr. Kristín Pálsdóttir, prestur heyrnarlausra Sr. Toshiki Toma, prestur innflytjenda og flóttafólks Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Þjóðkirkjan Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Skoðun Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar