Gullit er hættur að horfa á fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 07:33 Ruud Gullit er alveg búinn að fá nóg af því hvernig áherslur fótboltans hafa breyst á síðustu árum. Getty/ Carlos Alvarez Hollenska knattspyrnugoðsögnin Ruud Gullit segist vera búinn að fá nóg af spilamennskunni í fótboltanum í dag og lýsti því yfir að hann muni ekki horfa lengur á fótboltaleiki. „
Ég hef ákveðið að hætta að horfa á fótbolta. Ég hef ekki lengur gaman af íþróttinni okkar,“ sagði Ruud Gullit í viðtali við Ziggo Sport. Gullit átti sjálfur frábæran feril þar sem hann vann fjölda titla með AC Milan, var fyrirliði Evrópumeistara Hollands 1988 og endaði feril sinn sem spilandi knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni. Ruud Gullit did not hold back on the state of football after watching Arsenal vs. Chelsea. pic.twitter.com/VeWO9hc5wY— ESPN FC (@ESPNFC) March 3, 2026 Það lítur út fyrir að stórleikur Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi hafi verið kveikjan að þessum hörðu viðbrögðum kappans. „Ég horfði á Arsenal gegn Chelsea og þetta var þvílíkur ruslfótboltaleikur,“ sagði Gullit. „Ég sé leikmenn reyna að fiska hornspyrnur, leikmenn reyna að fiska innköst og ég sé boltastráka tilbúna að rétta leikmönnum handklæði. Fótboltinn er orðinn alveg hræðilegur. Ég vona að þetta sé ekki leiðin sem við stefnum á. Ég bíð eftir leikmönnum sem taka varnarmenn á, einhverjum eins og Lamine Yamal. Ég sakna gleðinnar. Ég hef bara ekki lengur gaman af fótbolta,“ sagði Gullit. „Allir eru að framkvæma verkefni á vellinum. Hvar eru leikmennirnir sem rekja boltann? Hvar eru leikmennirnir sem þora að gera eitthvað? Af hverju eru allir að senda boltann. Senda, senda, senda, senda,“ sagði Gullit hneykslaður. Hann fékk Gullknöttinn árið 1987 sem besti fótboltamaður Evrópu og varð í öðru sæti árið eftir.
Enski boltinn Arsenal FC Chelsea FC Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira