Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikar­meistarar

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Valskonur fagna bikarmeistaratitlinum.
Valskonur fagna bikarmeistaratitlinum. Vísir/Anton Brink

Valur er bikarmeistari í handbolta árið 2026, eftir sveiflukenndan úrslitaleik gegn Haukum að Ásvöllum. Lokatölur 19-23 og tíundi bikarmeistaratitill Vals í kvennaflokki staðreynd.

Leikurinn hófst af miklum krafti og voru bæði lið spræk sóknarlega. Mörkunum hreinlega rigndi inn, en eftir 19 mínútur var búið að skora 19 mörk. Staðan 9-10 Val í vil.

Þá settu markverðir liðanna í algjöran lás og kom ekki mark næstu tíu mínúturnar. Valskonum tókst í raun ekki að skora fram að hálfleiksflauti á meðan Haukar skoruðu tvö mörk. Staðan 11-10 Haukum í vil í hálfleik.

Sara Sif Helgadóttir, markvörður Hauka, varði 47% allra skota í fyrri hálfleik sem hún fékk á sig og Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, 45% skota sem komu á hana í fyrri hálfleik. Markvörslu sýning á Ásvöllum.

Haukar hófu síðari hálfleikinn mun betur og juku við forskot sitt á meðan Valur var í allskonar vandræðum og þá sérstaklega sóknarlega. Þegar korter var eftir tók Valur leikhlé, staðan 18-14 Haukum í vil og allt útlit fyrir að bikarinn yrði áfram á Ásvöllum.

Eftir leikhléið snerist þó leikurinn algjörlega við. Thea Imani Sturludóttir kom þá inn í sóknarleik Vals. Var það í fyrsta skipti í leiknum sem hún spilaði sókn, en hún hefur verið að glíma við meiðsli. Jafnframt var þetta í fyrsta skipti í leiknum sem örvhentur leikmaður lék í stöðu hægri skyttu hjá Val í leiknum. Við þessa breytingu breyttist allt flæði sem og að sóknarógn Vals jókst gríðarlega.

Valur skoraði næstu sjö mörk og lagði þar með grunninn að tíunda bikartitil félagsins í kvennaflokki. Á sama tíma varð vörn Vals að mennskum múrvegg sem Haukar fundu engar glufur á. Lokatölur 19-23, til hamingju Valur.

Atvik leiksins

Leikhlé Antons Rúnarssonar, þjálfara Vals, á 45. mínútu var vendipunktur leiksins. Allt breytist til batnaðar hjá Val á meðan leikur Hauka fór í skrúfuna.

Stjörnur og skúrkar

Markverðir beggja liða áttu stjörnuleik. Ásamt góðri markvörslu voru varnir beggja liða sterkar, sem útskýrir lágt markaskor í leiknum. Þrátt fyrir að Thea Imani hafi aðeins skorað tvö mörk, þá reyndist innkoma hennar skipta sköpum fyrir Val.

Hvernig spilamennska Hauka gjörsamlega hrundi á lokakaflanum var hrikalegt að horfa upp á. Leikmenn Hauka hreinlega bognuðu og á endanum brotnuðu við áhlaup Vals.

Dómarar

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson sá um að dæma þennan úrslitaleik og gerðu það frábærlega.

Stemning og umgjörð

Fínasta mæting var á þennan úrslitaleik. Það fjölgaði vel í stúkunni í fyrri hálfleik og voru pallarnir þéttsetnir á lokakaflanum. Mátti finna hvernig spennustigið jókst í húsinu þegar lokakafli leiksins var í gangi. Stuðningsmenn Vals ærðust úr fögnuði í leikslok enda var leikurinn mikil rússíbanareið sem endaði með sætum sigri.

Lovísa Thompson: „Ógeðslega ánægð“

Lovísa Thompson var að vonum glöð eftir leik.Vísir/Anton Brink

„Við mölluðum bara áfram. Mér fannst við aldrei panikka beint þó þetta hafi verið stál í stál og þegar við lentum mörgum mörkum undir. Þetta var ótrúlega mikill rússíbanaleikur, en mér fannst við samt alltaf rólegar. Gerðum bara eina sókn í einu og eina vörn í einu þó að þetta var alveg bras. Þetta eru bæði geggjuð varnarlið og bæði með geggjaða markvörslu. Þetta var bara ótrúlega lítið skor. En við fórum að þessu með því að vera rólegar,“ sagði Lovísa Thompson, leikmaður Vals, eftir leik.

Aðspurð en frekar hvað gekk á á lokakaflanum þá hafði Lovísa þetta að segja.

„Mér fannst við spila betri vörn og hjálpuðum Hafdísi aðeins meira við vorum að klukka vörn í hávörn og brjóta meira á þeim. Svo vorum við með geggjaða leikmenn sem stigu upp sem ég er ógeðslega ánægð með.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira