Upp­gjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leiks­lok

Hjörvar Ólafsson skrifar
Orri Gunnarsson var hetja Stjörnumanna í Laugardalshöllinni í kvöld.
Orri Gunnarsson var hetja Stjörnumanna í Laugardalshöllinni í kvöld. Vísir/Anton

Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í 18. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. 

Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti en lokatölur í leiknum urðu 88-90 Stjörnunni í vil.

Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrstu tveimur leikhlutum leiksins. Ármann var yfir, 26-24, þegar fyrsta fjórðungi lauk en góður endasprettur Stjörnunar í öðrum leikhluta sá til þess að gestirnir leiddu 44-49 þegar liðin röltu til búningsherbergja í hálfleik.  

Sama spenna hélst í seinni hálfleik og Ármann var tveimur stigum yfir, 86-88, þegar skammt var eftir af leiknum. Stjarnan skoraði hins vegar fjgöur síðustu stig leiksins og Orri tryggði stigin tvö. 

Hilmar Smári Henningsson skoraði tvær þriggja stiga körfur með skömmu millibili undir lok leiksins sem voru gulls ígildi og Giannis Agravanis steig upp á ögurstundu eftir að hafa átt erfitt uppdráttar framan af leik. 

Baldur Þór var ánægður með stigin tvö en ekki sérlega sáttur við spilamennskuna. Vísir/Vilhelm

Baldur Þór: Þeir töluðu skít á bekkinn okkar eftir þrista

„Þetta var furðulegur leikur og við spiluðum ekkert sérstaklega vel i þessum leik. Við náðum að kveikja á okkur undir lok leiksins og það voru í raun Ármenningar sem kveiktu í okkur,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, kátur að leik loknum.

„Leikmenn Ármanns voru að tala skít á bekkinn okkar eftir að hafa sett niður þriggja stiga körfur og spreyja á okkur. Ég held að það hafi kveikt neistann hjá okkur. Hilmar Smári setti tvo þrista þegar þess þurfti og við náðum að harka inn sigurinn,“ sagði Baldur Þór enn fremur. 

„Við vorum að fá á okkur margar villur, töpuðum mörgum boltum og leikurinn náði aldrei neinu flæði. Við tökum þessi tvö stig og förum nú inn í landsleikjahléið þar sem menn fara í mismunandi verkefni,“ sagði hann. 

„Nú fara einhver í endurheimt, aðrir að jafna sig á þeim meiðslum sem eru að plaga þá og einhverjir að ná sér ferskum af veikindum. Ég sjálfur sem og þeir Stjörnumenn sem eru í íslenska landsliðinu erum svo að fara að setja einbeitinguna á að leggja Litáen að velli,“ sagði Baldur um framhaldið hjá Stjörnuliðinu. 

Steinar: Héldum leikplaninu þangað til í lokin

„Við spiluðum vel lungann úr leiknum og héldum okkar innan leikkplansins. Við náðum að stýra tempóinu og vorum klókir allt þar til í lokin þegar við fórum aðeins út úr því sem við ætluðum að gera,“ sagði Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, eftir leik.

„Þetta er ofboðslega svekkjandi og það er súrt bragð í munninum núna. Við vorum í góðri stöðu til þess að sigla sigrinum heim en vorum sjálfum okkur verstir á endasprettinum,“ sagði Steinar þar að auki. 

„Mig langar að hrósa liðinu mínu fyrir að spila frábæra vörn allan leikinn. Baráttan var til fyrirmyndar og ég er stoltur af liðinu þrátt fyrir þetta tap. Við tökum það jákvæða út úr þessum leik og förum að undirbúa okkur fyrir lokasprettinn í landsleikjahléinu,“ sagði hann.

„Við vonumst til þess að Brandon verði klár í slaginn í síðustu fjóra leikina en við verðum bara að sjá til hvernig honum gengur að jafna sig í höndinni. Við erum spenntir fyrir lokaleikjum tímabilsins,“ sagði Steinar um komandi verkefni hjá Ármanni. 

Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var skiljanlega súr í leikslok.Vísir/Hulda Margrét

Atvik leiksins

Það var gaman að sjá Baldur Þór freista þess að kveikja stemmingu og kalla fram ákefð hjá leikmönnum sínum í leikhléum. Þar var alvöru innlifun og ástríða Stjörnunnar og það skilaði sér að lokum undir lok leiksins.

Stjörnur og skúrkar

Bræðurnir Ingvi Þór og Bragi Guðmundssynir drógu vagninn í leik Ármanns ásamt Daniel Love. Frammistaða þeirra og liðsheild Ármanns var nálægt því að skila sigrinum. 

Hilmar Smári gerði það sem til þurfti undir lok leiksins en hann skoraði tvær þriggja stiga körfur á crunch tímanum. Orri skoraði svo stigin tvö sem skildu liðin að. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir, Kristinn Óskarsson, Eggert Þór Adalsteinsson og Guðmundur Ragnar Björnsson, dæmdu þennan leik bara prýðilega og fá sjö í einkunn fyrir sín störf. 

Stemming og umgjörð

Það var fámennt en góðmennt í Laugardalnum í kvöld. Sjálfboðaliðar Ármanns eru einkar hjálpfúsir og allir að vilja gerðir til þess að aðstoða þeim sem koma að leiknum. Fínasta kvöld í Laugardalnum í kvöld. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira