Slot býst við Isak í mars og vonast eftir „bestu útgáfunni“ af honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2026 23:02 Alexander Isak meiddist illa í leik með Liverpool í desember. Hann nálgast nú endurkomu. Getty/Marc Atkins Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool hefur staðfest að framherji Liverpool, Alexander Isak, gæti snúið aftur til liðsæfinga strax í næsta mánuði og telur að félagið gæti enn séð „bestu útgáfuna af Alex“ á þessu tímabili.
Sænski framherjinn hefur verið frá keppni síðan í desember eftir að hafa bæði fót- og ökklabrotnað þegar hann skoraði mark í 2-1 sigri Liverpool á Tottenham Hotspur. Meiðslin bættu gráu ofan á svart eftir erfiða byrjun hjá framherjanum sem Liverpool keypti á 125 milljónir punda frá Newcastle United í sumar. Arne Slot believes there’s more to come from Alexander Isak 👀#PremierLeague pic.twitter.com/VrJwALyHYn— DAZN Football (@DAZNFootball) February 19, 2026 „Alex hefur verið á vellinum, ekki í fótboltaskónum sínum heldur í hlaupaskónum í fyrsta sinn í þessari viku, þannig að það mun líka taka sinn tíma. Ég held að við vitum öll að þegar þú ferð út á völlinn tekur það ekki þrjá mánuði í viðbót, en þessi lokastig endurhæfingar geta líka breytt hlutunum.“ sagði stjóri Liverpool. Setja ekki tímaramma á þetta „Í ræktinni er varla hægt að gera of mikið en á þessu stigi þarftu stöðugt að haka í næsta reit og svo næsta. Við skulum ekki setja tímaramma á þetta en það er ljóst að hann verður tiltækur – ef allt gengur að óskum – á þessu tímabili,“ sagði Slot. Aðspurður hvort Isak verði klár í kringum landsleikjahléið í mars bætti Slot við: „Það verður einhvers staðar þar í kring og svo er alltaf spurning hvort hlutirnir gangi virkilega vel eða hvort hann fái smá bakslag. Það verður í kringum þann tíma; lok mars eða byrjun apríl, þar sem hann verður vonandi kominn aftur með hópnum,“ sagði Slot. 🗣️ Arne Slot's latest update on Alexander Isak's return from injury...👇 pic.twitter.com/XwJUbq5fav— The Anfield Wrap (@TheAnfieldWrap) February 19, 2026 Þýðir ekki að þú sért tilbúinn að spila „Þegar þú ert kominn aftur með hópnum þýðir það ekki að þú sért tilbúinn að spila, hvað þá að byrja fótboltaleik, því aftur hefur hann verið frá í marga mánuði og síðast þegar hann var frá í marga mánuði gátum við öll séð að það tók hann smá tíma að verða leikmaðurinn sem við keyptum frá Newcastle“ sagði Slot. Isak hefur hingað til aðeins skorað þrjú mörk í 16 leikjum fyrir Liverpool í öllum keppnum en hann skoraði laglegt mark um leið og hann meiddist illa. Verðum að gefa honum tíma Þegar Slot var spurður hvernig sænski landsliðsmaðurinn myndi njóta góðs af því að fá heilt undirbúningstímabil í sumar sagði hann: „Það verður annað tímabil en núna en við búumst líka við öðrum leikmanni í lok tímabilsins en þeim sem við höfðum í fyrri hlutanum,“ sagði Slot. „Það er fullkomlega rökrétt því ég hef sagt það hundrað sinnum að við verðum að gefa honum tíma. Ef leikmaður hefur verið í fjóra eða fimm mánuði á einstaklingsæfingum getum við ekki búist við því að hann sé kominn á fullan hraða strax. Þannig að því miður fyrir hann og okkur höfum við ekki enn nýtt okkur besta Alex, en þetta félag og stuðningsmenn okkar munu vonandi sjá besta Alex á þessu tímabili en svo sannarlega á komandi árum,“ sagði Slot.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Fleiri fréttir Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Sjá meira