Viðskipti innlent

Byrja á þremur verslunum og skoða sam­einaða verslun á Sel­fossi

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Framtíð Lindex á Íslandi er björt, segir Tinna. Ýmsir möguleikar séu í skoðun varðandi framhaldið.
Framtíð Lindex á Íslandi er björt, segir Tinna. Ýmsir möguleikar séu í skoðun varðandi framhaldið.

Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna.

Þetta segir Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S.

S4S á og rekur verslanir Ellingsen, Air, Steinar Waage, Ecco, Skór.is, Skechers og Kaupfélagsins. Það tekur við Lindex-vörumerkinu af Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur og Alberti Þór Magnússyni, sem hafa tryggt sér umboðið fyrir Kappahl á Íslandi og hyggjast opna verslanir tengdar vörumerkinu þar sem áður voru verslanir Lindex.

Verslanir Lindex voru tíu talsins en verslununum tveimur í Kringlunni hefur þegar verið lokað. Hinar verslanirnar voru í Smáralind, á Glerártorgi á Akureyri, í Firðinum í Hafnarfirði, í Holtagörðum, í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Akranesi og á Egilsstöðum.

„Við höfum unnið hörðum höndum að því að tryggja hentugt verslunarrými svo við getum opnað sem fyrst eftir að núverandi staðsetningum verður lokað,“ segir Tinna, spurð að því hvort S4S hyggst opna verslanir á öllum þeim stöðum þar sem þær voru áður. 

„Miðað við stöðuna í dag stefnum við á opnun í vor í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri. Við erum einnig að skoða fleiri möguleika,“ bætir hún við.

Áhersla verði lögð á framúrskarandi þjónustu á lindex.is, þar sem sendingatíminn verði í mesta lagi tveir dagar. 

„Það sem er nýtt og spennandi er að viðskiptavinir geta verslað af fleiri vefsíðum S4S á sama tíma og fengið allt afgreitt saman í einni sendingu. Þú getur því keypt vörur af Lindex.is, Skor.is, Ellingsen.is og AIR.is og vörukörfurnar sameinast í eina fyrir viðskiptavininn. Þetta einfaldar verslunina til muna.“

Áfram verður boðið upp á dömufatnað, nærfatnað fyrir dömur og barnaföt.

Tinna segir framtíðina bjarta fyrir Lindex á Íslandi og að S4S hyggist halda ótrautt áfram í því að setja viðskiptavininn í fyrsta sæti og bjóða upp á framúrskarandi þjónustu.

Ýmsar hugmyndir eru á lofti varðandi frekari útbreiðslu.

„Okkur langar að opna á Selfossi og erum að skoða möguleikana þar. Við sjáum fyrir okkur að opna samhliða Steinar Waage og Ellingsen, þannig að við þurfum nokkuð stórt og hentugt rými. Það væri mjög spennandi skref.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×