Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Samúel Karl Ólason skrifar 18. febrúar 2026 10:04 Frá vinstri: PlayStation 3 (2006), PlayStation 4 (2013) og PlayStation 5 (2020). Næsta kynslóð gæti ekki litið dagsins ljós fyrr en í lok árs 2029. Vísir/Vilhelm Skortur og mikil verðhækkun á vinnsluminnisflögum, sem að mestu má rekja til gífurlegrar eftirspurnar frá gervigreindarfyrirtækjum, gæti leitt til þess að útgáfu næstu kynslóðar PlayStation-leikjatölvunnar verði frestað um allt að tvö ár. Forsvarsmönnum Sony hefur víst gengið illa að verða sér úti um svokallað Dram-vinnsluminni.
Áður stóð til að gefa PS6 út í lok næsta árs, 2027. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg en þar segir einnig að fyrirtæki sem framleiði tölvuflögur haldi ekki í við eftirspurn frá gervigreindarfyrirtækjum sem reisa nú gagnaver eins hratt og hægt er að slá þeim upp. Bloomberg segir að forsvarsmenn Nintendo séu að íhuga að hækka verðið á Switch 2 leikjatölvum þeirra, vegna hærri kostnaðar íhluta eins og vinnsluminnis. Sony er þegar búið að hækka verð á leikjatölvum og búnaði. Sjá einnig: Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því PlaysStation 5 var fyrst sett á markað árið 2020 og PS4 árið 2013, sem kom út sjö árum á eftir PS3. Hins vegar voru sex ár á milli PS3 og PS2 og fimm ár milli annarrar tölvunnar og þeirrar fyrstu. Að fresta útgáfu nýrrar leikjatölvu væri, samkvæmt frétt Forbes, fordæmalaust fyrir Sony. Þar segir þó einnig að í rauninni sé ekki mikil eftirspurn eftir nýrri kynslóð PlayStation. Eldri tölvurnar, og sérstaklega PS5 Pro útgáfan, beri sig enn vel og spilarar hafi ekki verið að kalla af miklum krafti eftir nýrri tölvu. Í fljótu bragði má færa rök fyrir því að frestun útgáfu nýrrar kynslóðar PlayStation þjóni hagsmunum Sony og jafnvel spilara líka. Leikir taka einnig mun lengri tíma í framleiðslu en þeir gerðu áður en það að gera hefðbundinn AAA leik tekur iðulega allt frá fjórum til sjö árum. Svo er auðvitað Grand Theft Auto 6, sem hefur tekið mun lengri tíma en það. GTA 5 kom út árið 2013, á PlayStation 3. Sjá einnig: Fresta GTA 6 aftur og um hálft ár Þá hefur einnig dregið úr tæknilega stökkinu milli kynslóða leikjatölva, með tilliti til grafíkur og reiknigetu.
Sony Leikjavísir Tækni Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira