Þjóð að þyngjast – Offita er orsök stórs hluta meðferðarkostnaðar Janus Guðlaugsson skrifar 18. febrúar 2026 09:01 Í fyrri grein höfundar; Þjóð að þyngjast – Fjárhagslega óhagkvæmt að fjárfesta ekki í heilsutengdum forvörnum - sem birt var nýlega kom fram að Ísland trjónir á toppi Norðurlandaþjóða hvað yfirþyngd og offitu varðar samkvæmt nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar frá árinu 2025. Hér verður litið frekar á þessar niðurstöður og hvers vegna það sé bæði læknisfræðilega og efnahagslega mikilvægt að beina fjármagni til gagnreyndra heilsutengdra forvarna. Í skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar, Normo 2025, þar sem meðal annars er fjallað um offitu og meðferðarkostnað, segir að yfirþyngd tengist stórum hluta kostnaðar heilbrigðiskerfis við langvarandi sjúkdóma eins og sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma og suma krabbameinssjúkdóma. Þar segir jafnfram að um 8,4% af heildarkostnaði heilbrigðiskerfa sé tengdur offitu-tengdum sjúkdómum, bæði beinum meðferðarkostnaði og óbeinum áhrifum. Janus GuðlaugssonAðsend Mynd 14 úr skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar, NORMO 2025, sýnir algengi offitu og yfirþyngdar meðal fullorðinna í Norðurlöndunum. Þar má glöggt sjá að Ísland leiðir óæskilegar niðurstöður, bæði þegar offota og yfirþyngd á í hlut. Það hlýtur því að vera áhyggjuefni heilbrigðisyfirvalda og ekki síður hvernig færa megi þessa stöðu til betri vegar. Hvað er til ráða fyrir íslenska þjóð? Þegar offita og ofþyngd er skoðuð með tilliti til menntunar, tafla 32a úr skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar, þá er áhugavert að sjá gríðarlegan mun á milli þeirra sem eru langskólagengnir (há menntun) og þeirra sem hafa litla menntun. Þessi munur kemur sérstaklega fram þegar offita og ofþyngd eru skoðuð en einnig þegar líkamsþyngdarstuðull (BMI) er skoðaður. Janus GuðlaugssonAðsend Þessar niðurtöður benda okkur einnig á mikilvægi skólakerfisins, að það sé fjölbreytt, aðlaðandi, heilsutengt og hugsað fyrir alla. Grundvallarsýn skólakerfisins þarf að miða að því að byggja undir stoðir heilsunnar samhliða annarri menntun. Fjölþætt heilsuefling þarf að hafa forgang því án heilsunnar verða lífsgæðin takmörkuð. Skólakerfið; leik-, grunn-, framhalds- og háskólakerfið, á að vera uppspretta lífsgæða til framtíðar. Til að svo megi vera þarf að sinna helstu grunnstoðum mannsins; hreyfingu og næringu. Skólinn þarf því að bjóða upp á 60 mínútna daglega hreyfingu og heilsutengda næringu sem uppfyllir kröfur emætti landlæknis og alþjóðlegra heilsutengdra viðmiðana. Þessi staðreynd að þyngd Íslendinga sé að aukast undirstrikar enn og aftur hvers vegna það er bæði læknisfræðilega og efnahagslega mikilvægt að beina fjármagni til gagnreyndra heilsutengdra forvarna fyrir alla aldurshópa því þannig má draga úr offitu, bæði með slíkum forvörnum en einnig inngripum af öðrum toga. Hér erum við Íslendingar eftirbátar annarra þjóða þar sem við verjum aðeins um 2.1% af heildarfjáramagni heilbrigðiskerfisins til þessa málaflokks; heilsutengdra forvarna. Ráðandi öfl á Alþingi, í heilbrigðisráðuneytinu og öðrum ráðuneytum, þurfa að gera betur. Heilsutengdar forvarnir eiga sér kröftugan stað utan heilbrgiðiskerfisins eins og það er skipulagt í dag. Að auka fjármagnið til heilsutengdra forvarna um aðeins 1,0–1,5% gæti orðið til þess að draga áralega úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu sem nemur milljörðum króna. Slík viðbót mun einnig draga úr kostnaði vegna veikinda starfsmenna á vinnumarkaði, samhliða því að bæta lífsgæði landsmanna, eldra fólks 65+, starfsfólks á vinnumarkaði og námsmanna á öllum skólastigum. Höfundur er með doktorspróf í íþótta- og heilsufræðum og hefur sinnt gagnreyndum heilsutengdum forvörnum hjá Janus heilsueflingu í 10 ár en þar áður sem kennari og fræðimaður við Háskóla Íslands. Heimildir: Normo, Nordic Monitoring 2014-2024; Nordic Council of Ministers; 2025. State of Health in the EU – Iceland – Country Health Profile 2023, OECD; 2023 Health at a Glance 2023, OECD; 2023 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Heilsa Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira