Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Sunna Sæmundsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 12:00 Ófremdarástandi er lýst í ályktun sem starfsfólk bráðamóttökunnar sendi frá sér eftir hitafund í gær. Þar segir að hvorki sé unnt að tryggja öryggi sjúklinga né starfsfólks vegna álags og þrengsla. Fyrir jól var gripið til þess ráðs að einangra sjúklinga í bílskúr bráðamóttökunnar. Landspítali/Þorkell Þorkellsson Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við.
Hátt í tvö hundruð mættu á fund stéttarfélaga með starfsfólki bráðamóttöku Landspítala sem fór fram í gærkvöldi. Í ályktun sem fundurinn sendi frá sér segir að hættuástand á deildinni sé fyrir löngu komið út fyrir öll mörk; hundrað sjúklingar séu að jafnaði vistaðir á bráðamóttökunni sem sé hönnuð fyrir þrjátíu og sex. Einangrun sé ómöguleg og ekki sé hægt að tryggja öryggi óstöðugra sjúklinga ásamt því að súrefniskútar og annar búnaður liggi eins og hráviði á göngum bráðamóttökunnar með augljósri bruna- og sprengihættu. Unnur Ósk Stefánsdóttir, formaður Félags bráðalækna, segir skýra kröfu um aðgerðir vera uppi. „Og við krefjumst þess að eftirlitsstofnanir sinni sínu lögbundna hlutverki og skyldu í því að bregðast við,“ segir Unnur. Unnur Ósk Stefánsdóttir, formaður Félags bráðalækna.vísir/Vilhelm Ályktunin var meðal annars send á Embætti landslæknis, Vinnueftirlitið og slökkvilið þar sem rýmingarleiðir séu ekki tryggðar vegna þrengsla, Persónuvernd, nokkur ráðuneyti og þingnefndir. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga lýsti stöðunni sem daglegum hamförum í kvöldfréttum Sýnar í gær og Unnur tekur undir þá lýsingu. „Þetta er löngu hætt að vera neyðarástand, þetta er komið langt yfir það. Við erum löngu komin á rautt og þetta er miklu meira en það. Við erum í raun og veru að reyna að gera það besta úr stöðunni fyrir alla. Við stöndum saman og ég held að það sé teymisvinnan og starfsfólkið á bráðamóttökunni sem haldi henni gangandi. Ég held að það sé bara mjög góð lýsing að lýsa þessu ástandi sem hamförum,“ segir Unnur. Þekking í hamfaravinnu nýtist vel „Ég held að sú þjálfun og þekking sem starfsfólk bráðamóttökunnar býr yfir hvað varðar það að opna spítala á hamfarasvæðum og að sinna sjúklingum á hamfaratímum sé sú reynsla og þekking sem nýtist okkur hvað best þessa dagana.“ Alma Möller heilbrigðisráðherra brást við ákalli starfsmanna bráðamóttökunnar í viðtali í gærkvöldi og benti á að sautján ný hjúkrunarrými yrðu opnuð á næstu dögum. Þá væri stefnt að því að opna eitt hundrað til viðbótar í Urðarhvarfi í byrjun sumars. Unnur segir það vissulega mikilvægt en þó duga skammt. „Ég hefði viljað sjá að hún myndi ræða við ríkisstjórn um aukna fjárveitingu til heilbrigðiskerfisins. Ég hefði viljað sjá aðgerðaáætlun, eða alla vega einhver drög að slíkri áætlun, og í raun og veru að hún tæki ástandinu af meiri fótfestu og að hún myndi meta alvarleika þess á sama hátt og við erum að lýsa.“ Eru þessi viðbrögð vonbrigði? „Já, mér finnst það.“ „Ég vissi af því að hún myndi koma í viðtal og ég vonaði að hún myndi lýsa yfir meiri alvarleika málsins, þar sem að hún sjálf er læknir. Hún skilur ástandið og hefur komið til okkar og séð þetta, þannig að ég hefði viljað að það hefði verið meiri matur í því sem hún sagði.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira