Tollgæslustjóri hafi lofað MS tollflokkuninni umdeildu Árni Sæberg skrifar 12. febrúar 2026 06:48 Aðalmeðferð í málinu fór fram í Landsrétti í gær. Vísir/Getty Innflytjandi pitsaosts með íblandaðri jurtaolíu telur tollgæslustjóra hafa verið vanhæfan þegar hann gaf út bindandi álit um umdeilda tollflokkun ostsins, þar sem hann hefði áður lofað MS að osturinn yrði settur í flokk sem ber háan toll. Tollflokkunin gengur í berhögg við álit Alþjóðatollastofnunarinnar en starfsmaður Tollsins segir að ávallt sé farið eftir álitum stofnunarinnar, liggi þau á annað borð fyrir.
Þetta er meðal þess sem kom fram í aðalmeðferð í máli innflutningsfyrirtækisins Danóls á hendur íslenska ríkinu fyrir Landsrétti í gær. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður sýknað ríkið af kröfum Danóls um að bindandi álit um tollflokkun pitsaostsins yrði ógilt. Fyrir Landsrétti fór Danól fram á að álitið yrði ógilt en í gagnsök krafðist ríkið þess að málinu yrði vísað frá dómi á grundvelli svokallaðrar res judicata reglu, það er að segja að þegar hefði verið leyst úr úrlausnarefni málsins fyrir dómstólum. Árið 2022 sýknaði Landsréttur ríkið af öllum kröfum um að felldur yrði úr gildi úrskurður tollgæslustjóra um tollflokkun ostsins. Málið væri að byrja í grunnskóla Tollflokkun pitsaosts hefur verið nokkuð mikið í fréttum undanfarin misseri en það vakti helst athygli fyrir ári, þegar Evrópusambandið setti Ísland á lista yfir viðskiptahindranir, sem útflutningsfyrirtæki í Evrópusambandsríkjum eru beitt í ríkjum utan sambandsins, í fyrsta skipti. Málið hófst aftur á móti fyrir sex árum síðan, þegar tollstjóri boðaði endurákvörðun á aðflutningsgjöldum sem greidd voru fyrir ostinn. Í upphafi málflutnings síns í gær sagði Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður Danóls, að málið væri þannig að komast á grunnskólaaldur. Því myndi hann ekki þreyta Landsrétt með því að reifa það allt í smáatriðum. Tollari leiddur fyrir dóm Aðalmeðferðin hófst á því að löglærður fulltrúi tollgæslustjóra í tollafgreiðslu Skattsins var leiddur fyrir dóminn sem vitni að beiðni Páls Rúnars. Hann spurði vitnið hver þýðing álita Alþjóðatollastofnunarinnar væri við ákvarðanir tollgæslustjóra um tollflokkun vara. Hann sagði að í öllum tilfellum nema einu, því sem varðar flokkun pitsaostsins, sem hann vissi af væri farið eftir álitum stofnunarinnar, ef þau lægju á annað borð fyrir. Enn fremur sagði hann að til hefði staðið að breyta tollflokkun pitsaostsins til samræmis við álit stofnunarinnar þegar Landsréttardómurinn fyrri féll um tollflokkunina. Málið sem nú er rekið fyrir Landsrétti snýr að áliti tollgæslustjóra þess efnis að ekki væri unnt að breyta tollflokkuninni, þar sem Landsréttur hefði dæmt um það hvernig flokka ætti ostinn. Loks nefndi fulltrúinn löglærði að hann þekkti til eins dæmis þar sem Alþjóðatollastofnunin hefði komist að annarri niðurstöðu en tollgæslustjóri eftir ákvörðun hans. Það hafi verið um aldamótin og þeirri tollflokkun hefði umsvifalaust verið breytt með dreifibréfi tollgæslustjóra. Sama málið aftur? Að lokinni vitnaleiðslu hófst málflutningur Páls Rúnars og þegar hann var kominn heldur stutt í ræðu sinni greip dómsformaður orðið og spurði hann út í það hvort málareksturinn nú snerist um afmarkaða ákvörðun tollgæslustjóra eða hvort undirliggjandi álitaefnið væri ekki það sama og í fyrra málinu sem Landréttur dæmdi í árið 2022. Með öðrum orðum hvort res judicata kæmi ekki í veg fyrir að reka mætti málið fyrir dómstólum. Páll Rúnar sagði að málið sem nú er rekið sneri aðeins að þeirri ákvörðun tollgæslustjóra sem fólst í bindandi álitinu, sem Danól vill fá hnekkt, og að burtséð frá því væri málið svo gjörbreytt frá því að fyrra málið var tekið fyrir að res judicata ætti ekki við. Þannig sé álit Alþjóðatollastofnunarinnar til að mynda yngra en dómur Landsréttar í fyrra málinu og mikið magn gagna liggi nú fyrir sem ekki lágu fyrir í fyrra málinu. Þess ber að geta að Endurupptökudómur hafnaði beiðni Danóls um endurupptöku fyrra málsins árið 2023. Vanhæfur tollgæslustjóri? Meðal þeirra nýju gagna sem Páll Rúnar vísaði til eru tölvupóstsamskipti milli Sigurðar Skúla Bergssonar tollgæslustjóra og lögmanna Mjólkursamsölunnar, sem hafi farið fram áður en umþrætt álit hans var gefið út. Páll Rúnar sagði þeim samskiptum hafa verið haldið frá Danól. Í greinargerð ríkisins segir aftur á móti að engar nýjar upplýsingar hafi komið fram í tölvupóstsamskiptunum, heldur hafi þau aðeins endurspeglað opinbera afstöðu tollyfirvalda til málsins. Meðal málsástæðna Danóls í málinu er að tölvupóstsamskipti þessi hafi gert tollgæslustjóra vanhæfan til þess að taka ákvörðun í málinu, þar sem hann hefði þegar lýst yfir afstöðu sinni til málsins. Því til stuðnings er vísað til eftirfarandi tölvubréfs tollgæslustjóra til lögmanna MS: „Tollayfirvöld geta staðfest að „Mozzarella pizza mix“ mun, í samræmi við álit starfsmanna framkvæmdarstjórnar ESB, verða flokkað í 4. kafla tollskrár en hvorki 19. né 21. kafla. Þá geta tollayfirvöld enn fremur staðfest að vörur framleiddar í samræmi við þau sjónarmið sem koma fram í nefndu áliti, þ.e. þar sem jurtaolíum hefur verið blandað við mjólkurvörur af tækni- og hagkvæmnisástæðum en án þess að mjólkurfitu sé skipt út fyrir jurtafitu, munu einnig flokkast í 4. kafla tollskrár. Loks mun endurskoðunardeild Skattsins athuga hvort vörur sem ættu að vera í 4. kafla í samræmi við ofangreind sjónarmið hafi á sl. sex árum verið flokkaðar í aðra kafla tollskrár.“ Páll Rúnar sagði að með þessu hefði tollgæslustjóri gefið MS fortakslaust loforð, þannig tekið afstöðu til málsins fyrir ákvörðunartöku og því gert sig vanhæfan til að taka ákvörðunina. Því til stuðnings vísaði hann til ógrynnis úrlausna dómstóla um hæfi en helst þriggja dóma Hæstaréttar um vanhæfi sérfróðs meðdómanda, meðal annars í Aurum-málinu svokallaða. Aðalmeðferð fór sem áður segir fram í gær og því má búast við dómi í málinu innan fjögurra vikna, í samræmi við ákvæði laga um meðferð einkamála.
Tollflokkun pitsaosts Matvælaframleiðsla Skattar, tollar og gjöld Dómsmál Tengdar fréttir Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur svarað fyrirspurn Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, um hvenær væri von á lagafrumvarpi til að leiðrétta tollflokkun á pitsuosti, með því að segja að taka ætti málið upp í viðræðum við Bændasamtök Íslands um endurnýjun búvörusamninga og vænta mætti frumvarps að þeim loknum, með vorinu. Félag atvinnurekenda gagnrýnir svör ráðuneytisins harðlega og bendir á að hlítni Íslands við alþjóðasamninga á borð við EES-samninginn eða samninginn um Alþjóðatollastofnunina geti ekki verið neitt samningsatriði við einkaaðila á borð við Bændasamtök Íslands. 20. janúar 2026 10:32 Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði segir mikilvægt að íslensk stjórnvöld gæti þess að boðaðar breytingar á tollflokkun á pítsaosti með íblandaðri jurtaolíu grafi ekki undan samkeppnishæfni íslenskra bænda og framleiðenda. 9. september 2025 21:58 Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Fjármálaráðherra hefur ákveðið að leggja fram frumvarp um að breyta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu til samræmis við ákvörðun Alþjóðatollastofnunarinnar um flokkun vörunnar. Ráðherra hefur áður boðað slíka lagasetningu en dregið áformin til baka eftir hávær mótmæli hagaðila. 9. september 2025 13:48 Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur í dag sent Íslandi formlegt áminningarbréf þar sem farið er fram á að stjórnvöld leiðrétti ranga tollflokkun á osti með viðbættri jurtaolíu, þar sem hún hamlar frjálsu flæði vara. 9. apríl 2025 12:33 Mest lesið Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sjá meira
Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur svarað fyrirspurn Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, um hvenær væri von á lagafrumvarpi til að leiðrétta tollflokkun á pitsuosti, með því að segja að taka ætti málið upp í viðræðum við Bændasamtök Íslands um endurnýjun búvörusamninga og vænta mætti frumvarps að þeim loknum, með vorinu. Félag atvinnurekenda gagnrýnir svör ráðuneytisins harðlega og bendir á að hlítni Íslands við alþjóðasamninga á borð við EES-samninginn eða samninginn um Alþjóðatollastofnunina geti ekki verið neitt samningsatriði við einkaaðila á borð við Bændasamtök Íslands. 20. janúar 2026 10:32
Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði segir mikilvægt að íslensk stjórnvöld gæti þess að boðaðar breytingar á tollflokkun á pítsaosti með íblandaðri jurtaolíu grafi ekki undan samkeppnishæfni íslenskra bænda og framleiðenda. 9. september 2025 21:58
Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Fjármálaráðherra hefur ákveðið að leggja fram frumvarp um að breyta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu til samræmis við ákvörðun Alþjóðatollastofnunarinnar um flokkun vörunnar. Ráðherra hefur áður boðað slíka lagasetningu en dregið áformin til baka eftir hávær mótmæli hagaðila. 9. september 2025 13:48
Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur í dag sent Íslandi formlegt áminningarbréf þar sem farið er fram á að stjórnvöld leiðrétti ranga tollflokkun á osti með viðbættri jurtaolíu, þar sem hún hamlar frjálsu flæði vara. 9. apríl 2025 12:33