Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. febrúar 2026 13:18 Stjörnurnar klæddu sig í skotskóna. getty Mörkin úr stórleikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir neðan. Manchester United fagnaði fjórða sigrinum í röð, Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Chelsea og Viktor Gyökeres kom boltanum tvívegis í netið fyrir Arsenal.
Manchester United - Tottenham 2-0 Rauðu djöflarnir tóku forystuna á 38. mínútu eftir vel útfærða hornspyrnu, stutta spilið skilaði sér, Bryan Mbeumo beið við vítateiginn eftir sendingu Kobbie Mainoo og lagði boltann meðfram jörðinni í fjærhornið. United hélt áfram að ógna og uppskar gott mark á 81. mínútu sem gerði út af við leikinn. Bruno Fernandes beið á fjærstönginni og slúttaði vel eftir glæsilega fyrirgjöf Diogo Dalot. Klippa: Manchester United - Tottenham 2-0 Arsenal - Sunderland 3-0 Martin Zubimendi kom Arsenal í 1-0 á 42. mínútu með frábæru skoti eftir sendingu frá Leandro Trossard. Svíinn Viktor Gyökeres virðist líka vera að vakna og hann bætti við öðru marki á 66. mínútu eftir stoðsendingu frá Kai Havertz. Gyökeres var ekki hættur og bætti við öðru marki sínu í uppbótartíma eftir sendingu frá Gabriel Martinelli. Klippa: Arsenal - Sunderland 3-0 Wolves - Chelsea 1-3 Úlfarnir brutu tvívegis af sér í eigin vítateig í fyrri hálfleik. Cole Palmer steig á vítapunktinn í bæði skipti og skoraði af miklu öryggi. Palmer var síðan aftur á ferðinni rétt fyrir hálfleik en þurfti enga vítaspyrnu þá. Chelsea sundurspilaði Úlfana og Marc Cucurella renndi boltanum út í teiginn á Palmer sem skoraði. Mjög óvænt tókst Wolves að minnka muninn í upphafi seinni hálfleiks þegar Tolu Arokodare skoraði upp úr hornspyrnu, en heimamenn voru aldrei nálægt því að skora annað mark. Klippa: Wolves - Chelsea 1-3
Enski boltinn Manchester United Arsenal FC Chelsea FC Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira