Innviðasjóður Reykjavíkur: Ný nálgun Viðreisnar Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 08:32 Við leggjum í dag fram tillögu í borgarstjórn um að greina og útfæra Innviðasjóð Reykjavíkur, nýja og markvissa leið til að fjármagna uppbyggingu leikskóla, skóla og annarra grunninnviða borgarinnar til lengri tíma. Hugmyndin er einföld. Að byggja upp gagnsæja og ábyrgari umgjörð fyrir langtímafjárfestingar í innviðum fyrir borgarbúa. Innviðauppbygging krefst nýrrar nálgunar Reykjavík er í vexti. Íbúum fjölgar, ný hverfi rísa og þörf fyrir innviði eykst ár frá ári. Þetta eru ekki tímabundin verkefni sem klárast á einu kjörtímabili, þetta er varanleg skuldbinding við borgarbúa. Samt hefur lántaka orðið sjálfgefin leið til að fjármagna þessa uppbyggingu. Lántaka getur verið nauðsynleg, en hún má ekki vera eina svarið. Þegar framtíð borgarinnar er fjármögnuð með skuldum er kostnaðinum einfaldlega velt áfram til næstu kynslóða. Það er hvorki sjálfbært né ábyrgt. Við leggjum í dag fram tillögu í borgarstjórn um að greina og útfæra Innviðasjóð Reykjavíkur, nýja og markvissa leið til að fjármagna uppbyggingu leikskóla, skóla og annarra grunninnviða borgarinnar til lengri tíma. Hugmyndin er einföld. Að byggja upp gagnsæja og ábyrgari umgjörð fyrir langtímafjárfestingar í innviðum fyrir borgarbúa. Innviðasjóður Reykjavíkur er hugsaður sem tæki til betri forgangsröðunar og meiri festu í fjárfestingum borgarinnar. Í stað þess að arðgreiðslur frá B-hlutafélögum, tekjur af sölu byggingarréttar, innviðagjöld og sala eigna, hverfi inn í hítina þá yrðu slíkar tekjur tengdar beint við uppbyggingu innviða og niðurgreiðslu skulda sem tengjast þeim. Þetta snýst ekki um ný útgjöld. Þetta snýst um betri stjórnun. Skýrt og gagnsætt fyrirkomulag Mikilvægt er að taka af allan vafa. Innviðasjóður Reykjavíkur yrði bókhaldsleg eining innan A-hluta borgarinnar, með skýra framsetningu í fjárhagsáætlun og ársreikningi. Þetta er ekki leið til að komast fram hjá reglum, heldur leið til að beita þeim af meiri ábyrgð, gagnsæi og festu. Sjóðurinn verði ekki notaður til dags- daglegs rekstrar borgarinnar, heldur einvörðungu til langtímafjárfestinga og skuldalækkunar. Með því væri hægt að jafna sveiflur í fjárfestingum og draga úr þörf fyrir lántökur til framtíðar. Tillaga með skýra framtíðarsýn Tillaga Viðreisnar felur ekki í sér fullmótaða lausn heldur að borgarstjóra, í samráði við fjármála- og áhættusvið, verði falið að greina og útfæra Innviðasjóð og leggja fram rökstudda lokatillögu. Við leggjum til þverpólitíska nálgun sem bindur engan í niðurstöðu en krefst þess að borgin hugsi lengra en eitt fjárhagsár í senn. Valið er skýrt Viljum við halda áfram að byggja framtíð Reykjavíkur með aukinni skuldsetningu?Eða viljum við skapa kerfi sem fjármagnar innviði af ábyrgð, festu og gagnsæi? Innviðasjóður Reykjavíkur er ekki töfralausn en hann er skýrt skref í rétta átt. Og stundum eru það einmitt slík skref sem skipta mestu máli. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Leikskólar Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Mest lesið Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson Skoðun Skoðun Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar