Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Sindri Sverrisson skrifar 2. febrúar 2026 16:02 Dagur Sigurðsson og hans menn geta fagnað vel eftir verðlaun á stórmóti annað árið í röð. Getty/Sina Schuldt Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska handboltalandsliðinu eru þjóðhetjur og þeim verður fagnað í dag eftir bronsverðlaunin á EM, rétt eins og eftir silfrið á HM fyrir ári síðan.
Stemningin fyrir handboltalandsliðinu er mikil í Króatíu og búist er við margmenni í miðborg Zagreb, á Ban Jelacic torginu þar sem athöfn hefst klukkan 18 að staðartíma. Samkvæmt 24 Sata voru aðdáendur farnir að koma sér fyrir við sviðið fjórum klukkutímum áður en dagskráin átti að hefjast, og lögregla með fjölmenna sveit á svæðinu. Tónlistarmaðurinn umdeildi Thompson, sem ekki mátti heyrast í fyrir leiki Króata í handboltahöllunum á EM vegna ásakana um að upphefja fasisma, mun stíga á stokk rétt eins og hann gerði fyrir ári síðan við svipað tilefni. Dagur sló í gegn við þau hátíðarhöld og er orðinn að þjóðhetju í Króatíu. Króatar tryggðu sér bronsverðlaunin á EM með enn einum sigrinum á Íslandi, 34-33 í gær. Þrjú af fjórum töpum Íslands á síðustu tveimur stórmótum hafa komið gegn Króötunum hans Dags. Fá 760.000 krónur á mann Mikil ánægja er með árangurinn í Króatíu, ekki bara hjá almenningi heldur einnig ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Ráðherra íþrótta og ferðamála, Tonci Glavina, tók á móti króatíska EM-hópnum á flugvellinum í Zagreb í nótt. Þar kom fram, samkvæmt 24 Sata, að leikmenn og allir í starfsteymi króatíska liðsins fengju sérstakan bónus vegna árangursins. Þar er um að ræða 5.250 evrur á mann, eða um 760.000 krónur. „Ég óska handboltamönnunum okkar til hamingju með þennan stórkostlega árangur. Þetta er enn einn sönnun þess að hér höfum við gullkynslóð sem þegar hefur skilið eftir djúp spor, og ég er viss um að mun halda áfram að ná frábærum árangri á komandi árum,“ sagði Glavina en EM-hópurinn var svo boðinn til forsætisráðherrans Andrej Plenkovic í hádeginu.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Sjá meira