Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 10:01 Íslenska liðið stillir hér upp fyrir Hauk Þrastarson. Það kom oft í hans hlut að reyna að ná skoti þegar fáar sendingar voru eftir. Vísir/Vilhelm Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu.
Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp tapið gegn Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á EM. „Við höfum verið að tala um skort á fjölbreytileika í sóknarleik íslenska landsliðsins. Þorsteinn Leó [Gunnarsson] átti kannski að koma með eitthvað framlag inn í þetta landslið. Því miður meiddist hann. Hann er svona skytta. Eru fleiri leikmenn að koma inn upp sem væru kannski svona, eru aðeins hærri og eru skyttur?“ spurði Stefán Árni Pálsson. Þurfum klárlega mann eins og hann „Síðustu ár höfum við ekkert verið að fá upp allt of mikið upp af akkúrat þessum týpum en við höfum verið að gera það ágætlega án þeirra. En ég held klárlega að við þurfum að fá mann eins og hann inn í þetta. Við þurfum að fá leikmenn sem geta skotið utan af velli,“ sagði Einar Jónsson. „Við erum með leikmenn sem eru virkilega góðir í gegnumbrotum. Við erum með leikmenn sem eru fínir í svona skotum af stuttu færi. Þá þurfum við Þorstein Leó en ég vil líka nefna Reyni [Stefánsson] því þar er gaur sem getur skotið af níu til tíu metrum. Hann er nú kominn á góðan stað núna, hjá Melsngen í Þýskalandi, en hann þarf náttúrulega bara að sýna og sanna að hann eigi heima þarna. Þetta eru svona í fljótu bragði þeir leikmenn sem ég sé að eru svona einhverjir skotmenn,“ sagði Einar. Vantar ekkert ofboðslega mikið í þetta lið „Það vantar ekkert ofboðslega mikið í þetta lið til þess að þetta verði heimsklassa, við erum heimsklassalið, en til þess að þetta kannski stígi næsta skref að mínu mati,“ sagði Einar og nefnir sérstaklega mörk með langskotum. Af þeim liðum sem spiluðu um verðlaun á Evrópumótinu í ár var íslenska landsliðið að fá langfæst mörk með langskotum á mótinu eða aðeins 34 á meðan Króatar skoruðu 71 langskotmark, Danir voru með 62 mörk fyrir utan og Þjóðverjar skoruðu heil 97 mörk með skotum af níu metrum. „Við erum það lið sem hefur skorað langfæst mörk utan af velli. Við erum að erfiða miklu meira heldur en önnur lið. Maður horfir á úrslitaleikinn í dag. Þú ert bara með Þjóðverja og þú ert með Danina. Þau eru alltaf með einhverja leikmenn sem bara eru að negla á markið af níu metrum. Við erum ekki þarna,“ sagði Einar. Stærsti þátturinn ef við ætlum upp á næsta stig „Þetta er einn af þessum þáttum sem ég tel reyndar vera stærsta þáttinn, ef við ætlum upp á næsta getustig. Ef við ætlum að keppa við þessar þjóðir þá verðum við að fá fjölbreyttari sóknarleik, sem meðal annars býður upp á það að við séum með leikmenn sem geta skotið á markið,“ sagði Einar. „Að liðin fari að rjúka aðeins út í okkar og þá er náttúrulega búið að opnast fyrir Gísla [Þorgeir Kristjánsson],“ skaut Rúnar Kárason inn í. Enginn að biðja um sextíu mínútur „Það er enginn að tala um það að Þorsteinn Leó þurfi að spila sextíu mínútur. Við erum að tala um að það þurfi að dreifa álaginu og geta breytt aðeins til þannig við séum örlítið fjölbreyttari,“ sagði Einar. Það má hlusta á meira um þetta og annað í kringum íslenska landsliðið í Besta sætinu þar sem menn voru að gera upp lokaleikinn á móti Króatíu sem og allt mótið. Allur þátturinn er aðgengilegur hér fyrir neðan sem og á öllum hlaðvarpssveitum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Tengdar fréttir Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Íslensku landsliðsmennirnir eru áberandi meðal efstu manna í tölfræði Evrópumótsins í handbolta sem lauk í gær og Ísland á menn í efsta sætinu á tveimur listum. 2. febrúar 2026 06:33 „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31 „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. 1. febrúar 2026 17:16 EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona EM ævintýri strákanna okkar er lokið. Fjórða sætið var niðurstaðan að þessu sinni. 1. febrúar 2026 18:47 Biður Dag afsökunar Króatinn Nenad Kljajic, fyrrverandi landsliðsmaður og handboltaþjálfari, sem var hluti af liði Króatíu sem vann Ólympíugull á leikunum í Atlanta árið 1996, biður Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu afsökunar í færslu á samfélagsmiðlum í dag. 1. febrúar 2026 19:46 Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti. 1. febrúar 2026 19:00 Mest lesið Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Golf Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Enski boltinn Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Enski boltinn Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Enski boltinn Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina Handbolti Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Formúla 1 Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Valur sótti deildarmeistaratitil til Eyja Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Póllands Íslendingaliðið lauk leik með tapi en Bjarki Már mætir GOG eða PSG Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Viktor Gísli frábær og Barca endaði á toppnum „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Sjá meira
Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Íslensku landsliðsmennirnir eru áberandi meðal efstu manna í tölfræði Evrópumótsins í handbolta sem lauk í gær og Ísland á menn í efsta sætinu á tveimur listum. 2. febrúar 2026 06:33
„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31
„Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. 1. febrúar 2026 17:16
EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona EM ævintýri strákanna okkar er lokið. Fjórða sætið var niðurstaðan að þessu sinni. 1. febrúar 2026 18:47
Biður Dag afsökunar Króatinn Nenad Kljajic, fyrrverandi landsliðsmaður og handboltaþjálfari, sem var hluti af liði Króatíu sem vann Ólympíugull á leikunum í Atlanta árið 1996, biður Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu afsökunar í færslu á samfélagsmiðlum í dag. 1. febrúar 2026 19:46
Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti. 1. febrúar 2026 19:00