Upp­gjörið KR - Grinda­vík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grinda­vík

Hjörvar Ólafsson skrifar
Þórir Þorbjarnarson kemst framhjá Jordan Sample og keyrir í átt að körfunni. 
Þórir Þorbjarnarson kemst framhjá Jordan Sample og keyrir í átt að körfunni.  Vísir/Anton Brink

KR burstaði Grindavík þegar liðin áttust við í 15. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. KR varð þar sem annað liðið til þess að leggja Grindavík að velli í deildinni á þessu keppnistímabili.

Lokatölur í leiknum urðu 93-71 KR-ingum í vil. 

Leikmenn KR settu tóninn strax frá fyrstu míntu leiksins. KR-ingar spiluðu orkumikla vörn og voru heitir fyrir utan þriggja stiga línuna.  Það skilaði KR-liðinu níu sitga forskoti inn í annan leikhluta en staðan var 26-17 fyrir KR eftir fyrsta leikhluta. 

KR-ingar fengu svo góðar innkomur af varamannabekknum. Veigar Áki Hlynsson setti niður tvo þrista á skömmum tíma og Orri Hilmarsson einn. Þórir Þorbjarnarson vildi svo ekki vera minni maður og setti niður einn slíkan sömuleiðis.

Þá setti Friðrik Anton Jónsson niður tvær þriggja stiga körfur eftir að hann kom inná sem varamaður en hann kom KR í 31-17 í upphafi annars leikhluta. KR-ingar skoruðu raunar fyrstu níu stig annars leikhluta og komust í 35-17.

Leikmenn KR héldu áfram að bæta við forskot sitt og Þórir kom KR-ingum 21 stigi yfir, 40-19, með þriggja stiga körfu um miðjan annan leikhluta.

Linards Jaunzems var stigahæstur á vellinum með 21 stig. Vísir/Anton Brink

Þriggja stiga skotnýting KR-liðsins var býsna góð það í fyrri hálfleik en heimamenn hittu úr 11 af 22 þriggja stiga skotum sínum.

Þórir og Toms Leimanis voru þrjá þrista hvor í hálfleik og Friðrik Anton og Veigar Áki tvo. Orri Hilmarsson laumaði svo einni þriggja stiga körfu niður í fyrri hálfleik.

Vörn KR var svo hreyfanleg og öflug en heimamenn héldu Grindavík í 30 stigum í fyrri hálfleik. Staðan var 53-30 fyrir KR þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik.

KR-ingar slökuðu ekkert á klónni í upphafi seinni hálfleiks og heimamenn héldu áfram að bæta forystu sína jafnt og þétt en 30 stigum munaði á liðunum, 70-40, um miðbik þriðja leikhluta.

Friðrik Anton setti síðan jarðarber á kökuna fyrir KR-inga með þriggja stiga körfu af löngu færi í þann mund sem lokaflautan gellur í þriðja leikhluta. KR leiddi 81-51 þegar haldið var í fjórða og síðasta leikhlutann.

KR-ingar héldu Grindvíkinum áfram í þægilegri fjarlægð í fjórða leikhluta og fóru að lokum með 22 stiga sigur af hólmi. 

Grindavík er eftir sem áður á toppi deildarinnar með 26 stig en KR komst upp að hlið Keflavík í fimmta til sjötta sæti en liðin hafa hvort um sig 16 stig. 

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var sáttur við lærisveina sína. Vísir/Anton Brink

Jakob Örn: Flott frammistaða hjá öllum sem spiluðu

„Við komum af krafti inn í þennan leik og það var gríðarleg orka í liðinu allt frá upphafi til enda. Við náðum að stýra tempóinu og gera vel í baráttunni um sóknarfráköst. Það skilaði þessum sigri,“ sagði Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, að leik loknum.

„Vörnin var mjög þétt og mikil ákefð á þeim enda vallarins. Það varð til þess að við gátum spilað þann hraða bolta sem við viljum spila. Grindavík gaf okkur svo ákveðin skot og við nýttum okkur það vel,“ sagði Jakob Örn enn fremur. 

„Við náttúrulega hittum heilt yfir bara mjög vel í þessum leik og ég var ánægður með hversu mikið sjálfstraust leikmenn mínir voru með. Við fengum gott framlag frá mörgum leikmönnum og frammistaðan var flott hjá öllum þeim sem spiluðu þennan leik,“ sagði hann stoltur.

Helgi Már: Líkamstjáningin slæm og samskiptin neikvæð

„Við vorum ólíkir sjálfum okkur og komum ferlega flatir inn í þennan leik. Límamstjáningin var slæm og öll samskipti milli leikmanna liðsisn voru neikvæð. Það kann aldrei góðri lukku að stýra,“ sagði Helgi Már Magnússon, þjálfari Grindavíkur, eftir leik.

„Fátt af því sem við lögðum upp með fyrir þennan leik gekk upp. Kannski var leikplanið ekki nógu gott en mér fannst aðallega bara hugarfarið ekki nógu gott og menn hengdu haus allt of snemma,“ sagði Helgi Már þar að auki. 

„Þessi leikur skilgreinir okkur ekki og við verðum ekki dæmdir af þessari frammistöðu. Við erum með 13 sigra í 15 leikjum og hefðum tekið þeirri stöðu fyrir tímabilið. Þessi spilamennska veldur mér þó áhyggjum en það er skemmtileg áskorun að finna lausnir og koma sterkari til baka,“ sagði hann um stöðu mála. 

Helgi Már Magnússon, þjálfari Grindavíkur, hefði viljað sjá jákvæðari samskipti milli leikmanna sinna. 

Atvik leiksins

Friðrik Anton skoraði þrjár þriggja stiga körfur í þessum leik en sú sem hann setti niður undir lok þriðja leikhluta stóð upp úr og var til þess að kóróna góða frammistöðu hans í leiknum.

Stjörnur og skúrkar

Það er erfitt að taka einhverja út úr KR liðinu en liðsbragurinn var það sem lagði grunninn að þessum góða sigri. Linards Jaunzems var þó stigahæstur á vellinum með 21 stig.

Þórir kom næstur með 17 stig en hann mataði samherja sína einnig með 13 stoðsendingum. Friðrik Anton kom sterkur inn af bekknum en þrjú af sex þriggja stiga skotum Friðriks Antons fóru ofan í og þegar yfir lauk skilaði hann 11 stigum á töfluna. 

Toms Leimanis steig upp þegar þess þurfti og skoraði 13 stig. Toms skoraði líkt og Friðrik Anton þrjár þriggja stiga körfur í sex tilraunum. Toms skoraði 13 stig. Kenneth Jamar Doucet var svo sterkur undir körfunni og reif niður níu fráköst. 

Hjá Grindavík voru Daniel Mortensen og Jordan Sample atkvæðamestir með 18 stig hvor og Khalil Shabazz lagði 15 stig í púkkinn. 

Kenneth Jamar Doucet skoraði 10 stig og tók níu fráköst. Vísir/Anton Brink

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Sigmundur Már Herbertsson, Kristinn Óskarsson og Eggert Þór Adalsteinsson, dæmdu þennan leik bara heilt yfir vel. Leikurinn fékk að flæða án óþarfa flautukonserts og fá sem engin atvik sem orkuðu fram úr hófi tvímælis. Þeir félagar geta þar af leiðandi farið sáttir inn í helgina með átta í einkunn fyrir sín störf.

Stemming og umgjörð

Fantagóð stemming á Meistaravöllum í kvöld. Ung og efnileg stuðningsmannasveit KR lét vel í sér heyra. Heldri góðborgarar úr Vesturbænum tóku svo reglulega undir og glatt var á hjalla í stúkunni. Vesturbæingar hristu saman andann á Þorrablóti Vesturbæjar um síðustu helgi og samheldnin var enn til staðar þegar fók kom saman á leiknum í kvöld.

Toms Leimanis er að koma vel inn í KR-liðið. Vísir/Anton Brink

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira