Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Eiður Þór Árnason skrifar 22. janúar 2026 21:15 Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, situr utan þings. Vísir/Egill Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í formannssæti flokksins. Þetta tilkynnti hún á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld.
Mbl.is greindi fyrst frá. Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sækist einnig eftir formennsku á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Fyrir liggur að Sigurður Ingi Jóhannsson, núverandi formaður flokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku. Hann tók við árið 2016 eftir að hafa skorað Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þáverandi formann, á hólm. Willum og Einar ætla ekki fram Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Framsóknar, tilkynnti fyrr í kvöld að hann hyggist ekki bjóða fram krafta sína á flokksþinginu þann 14. til 15. febrúar sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Hvatti Willum þess í stað Lilju til að bjóða sig fram. Einnig hefur verið skorað á Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóra og núverandi oddvita í borginni, en sá hefur gefið út að hann sækist ekki eftir formannssætinu. Lilja utan þings Lilja var þingmaður Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi suður á árunum 2016 til 2024. Hún missti þingsæti sitt í kosningunum 2024. Lilja var utanríkisráðherra árin 2016 til 2017, mennta- og menningarmálaráðherra 2017 til 2021, og loks menningar- og viðskiptaráðherra 2021 til 2024. Lilja hefur verið varaformaður Framsóknarflokksins frá árinu 2016. Fréttin hefur verið uppfærð.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Tengdar fréttir Willum fer ekki fram og styður Lilju Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssæti Framsóknarflokksins. Þess í stað styður hann Lilju Dögg Alfreðsdóttur varaformann. 22. janúar 2026 20:48 Ingibjörg býður sig fram í formanninn Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar. 20. janúar 2026 09:39 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Willum fer ekki fram og styður Lilju Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssæti Framsóknarflokksins. Þess í stað styður hann Lilju Dögg Alfreðsdóttur varaformann. 22. janúar 2026 20:48
Ingibjörg býður sig fram í formanninn Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar. 20. janúar 2026 09:39