Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2026 21:49 Það verður vonandi jafngaman hjá Íslendingum í Malmö eins og í Kristianstad. Hér fagnar Elliði Snær Viðarsson með kátum stuðningsmönnum Íslands. EPA/Johan Nilsson/ Dagur Sigurðsson og félagar fengu skell í kvöld og verðlaunin eru að næsti leikur er á móti Íslandi. Þjóðirnar spila fyrsta leikinn í milliriðlinum klukkan 14.30 á föstudaginn.
Lokaleikirnir í riðlakeppni Evrópumótsins í handbolta fóru fram í kvöld og þar með er loksins orðið endanlega ljóst hvernig milliriðill íslenska liðsins lítur út. Það var vitað að íslenska liðið spilar tvo síðustu leiki sína við Svisslendinga og Slóvena en liðið byrjar aftur á móti á móti liðunum sem komu upp úr E-riðlinum. Svíþjóð og Króatía voru komin áfram fyrir leik kvöldsins en spiluðu hreinan úrslitaleik um sigur í riðlinum og hve mörg stig þau taka með sér inn í milliriðilinn. Íslenska liðið byrjar milliriðilinn á móti liðinu í öðru sæti og sigur Svía í kvöld þýðir að það verður því leikur á móti Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í króatíska landsliðinu á föstudaginn. Sá leikur verður sá fyrsti í þessum milliriðli og hefst klukkan 14.30 að íslenskum tíma. Ísland spilar klukkan 14.30 í þremur af fjórum leikjum sínum í milliriðlinum. Strákarnir mæta síðan Svíum klukkan 17.00 á sunnudaginn en tveir síðustu leikirnir eru síðan á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku, báðir klukkan hálfþrjú að íslenskum tíma. Evrópska handboltasambandið hefur nú ákveðið tímaröð leikjanna en þrír leikir fara fram á hverjum degi klukkan 14.30, 17.00 og 19.30. Leikir Íslands í milliriðli Föstudagurinn 23. janúar Klukkan 14.30 Ísland-Króatía Sunnudagurinn 25. janúar Klukkan 17.00 Ísland-Svíþjóð Þriðjudagurinn 27. janúar klukkan 14.30 Ísland-Sviss Miðvikudagurinn 28. janúar klukkan 14.30 Ísland-Slóvenía
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Gylfi gerði nýjan samning við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira