„Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Smári Jökull Jónsson skrifar 20. janúar 2026 13:00 Björn Snæbjörnsson er formaður Landssambands eldri borgara. Vísir/Vilhelm Formaður Landsambands eldri borgara segir fréttir af aukinni áfengisdrykkju eldra fólks hafa komið verulega á óvart. Vandamálið sé falið og þörf sé á fræðslu til eldri borgara um skaðsemi áfengis.
Greint var frá aukinni drykkju meðal eldra fólks í kvöldfréttum Sýnar í gær. Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum sagði vandamálið falið og að vikulega væri veitt ráðgjöf til hjúkrunarheimila og heimaþjónustu vegna drykkju eldra fólks. „Já þetta auðvitað sló mann heilmikið vegna þess að þetta hefur ekki komið, inn á okkar borð hjá Landssambandi eldri borgara. Auðvitað hafði maður heyrt að þetta væri eitthvað vaxandi vandamál en ég skal viðurkenna að þetta kom mér verulega á óvart,“ sagði Björn Snæbjörnsson formaður Landssambands eldri borgara. „Þetta er náttúrulega falið vandamál og nákvæmlega eins og við höfum verið að ræða mikið í sambandi við ofbeldi gagnvart eldra fólki. Þetta er bara sama dæmi, falið vandamál sem er nauðsynlegt að skoða betur og spurning um meiri fræðslu,“ bætir Björn við. „Það er heilmikil skaðsemi“ Þegar fólk hætti að vinna geti það misst félagsleg tengsl og glímt við einmanaleika. Slíkt bjóði hættunni heim. „Þá er svolítil hætta á því að þegar að þegar menn eru ekki með eitthvað sem getur tekið við af vinnunni, einhverjar tómstundir eða slíkt þá er hætta á að menn fari kannski að fá sér fleiri bjóra og ýmislegt annað.“ Talið er að áfengi sé ástæða tæplega fjórðungs heimsókna á bráðamóttöku og þá fylgir drykkju áfengis auknar líkur á fjölmörgum sjúkdómum. Björn segir þörf á fræðslu til eldra fólks um afleiðingar áfengisdrykkju. „Það er heilmikil skaðsemi og ég held að það þurfi að koma betur fram og fólk átti sig ekki á því að það er ekki mjög gott að fólk sé að sulla endalaust svona í víni.“
Áfengi Eldri borgarar Heilbrigðismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira