Barbara sakar Sigríði um einelti og Valtý um gagnaleka Árni Sæberg skrifar 16. janúar 2026 14:31 Svo virðist sem starfsandinn hjá Héraðsdómi Reykjavíkur sé ekki eins og best verður á kosið. Vísir/Vilhelm Barbara Björnsdóttir héraðsdómari segir Sigríði Hjaltested, meðdómara hennar við Héraðsdóm Reykjavíkur, hafa lagt hana í einelti í rúma tvo áratugi. Sigríður hafi ritað Dómstólasýslunni bréf þar sem fullyrt er að þau Símon Sigvaldason, þáverandi dómstjóri, hafi átt í ástarsambandi. Valtýr Sigurðsson, eiginmaður Sigríðar og fyrrverandi ríkissaksóknari, hafi lekið bréfinu til verjanda Margrétar Friðriksdóttur, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru.
Aðalmeðferð í máli Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra vefsins Frettin.is, fer fram í dag. Margrét er ákærð fyrir ærumeiðingar í garð dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem hafði sakfellt hana fyrir hótanir. Viðsnúningur í Landsrétti Dagana eftir að Margrét var sakfelld, í febrúar árið 2023, fyrir hótanir í garð baráttukonunnar Semu Erlu Serdaroglu í Héraðsdómi Reykjavíkur birti Margrét færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“. Hún hélt því jafnframt fram að vitnisburðir í máli hennar hefðu verið falsaðir og um hefði verið að ræða „plott“ til að fá hana sakfellda. Þess má geta að dómnum á hendur Margréti fyrir hótanirnar var áfrýjað til Landsréttar og þar var hún sýknuð. Stendur við ummælin Margrét sagði fyrir dómi í morgun Barböru hafa framið á henni réttarmorð, með því að sakfella hana fyrir hótunarbrot. Hún hafi reiðst vegna þess og því ritað færslu á Facebook, þar sem hún úthúðaði dómaranum. Hún kvaðst hafa opnað orðabók í leit að mildasta orðinu til þess að lýsa Barböru. „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm,“ sagði hún meðal annars. Áralangt einelti Barbara bar vitni í dómsal í morgun, eftir að dómari greindi henni frá reglum um réttarhöld en sagði þó að hann teldi að hún þekkti vel til þeirra, að því er segir í frétt Ríkisútvarpsins. Þar er haft eftir Barböru að Sigríður hafi allt frá árinu 2003 lagt hana í einelti og ekki líkað við þegar hún fengi framgang í starfi. Sigríður hefði dreift sögum um meint ástarsamband þeirra Símonar og ritað Dómstólasýslunni bréf þar sem hún hafi viðrað áhyggjur af sambandinu. Fjallað var um bréfið í úrskurði Landsréttar sem kveðinn var upp þann 4. september síðastliðinn. Með úrskurðinum var lögmanni Margrétar, Hilmari Garðars Þorsteinssyni, heimilað að leggja bréfið fram sem gagn í málinu. Valtýr hafi lekið bréfinu Þá er haft eftir Barböru að eiginmaður Sigríðar, Valtýr Sigurðsson, hafi hótað að gera bréfið opinbert ef hún hætti ekki við kæru sína á hendur Margréti. Hann hafi þá sett sig í samband við áðurnefndan Hilmar og látið honum bréfið í té. Í úrskurði Landsréttar sagði að ekki væri á valdi dómara að hindra að gögn sem Margrét hygði byggja málatilbúnað sinn yrðu lögð fram í sakamáli nema þau væru bersýnilega þýðingarlaus fyrir málið eða því óviðkomandi. Í ljósi varna Margrétar hafi verið talið óvarlegt að slá því föstu að bréfið væri bersýnilega tilgangslaust til sönnunar og því fallist á kröfu hennar um að leggja það fram. Vísir óskaði á sínum tíma eftir því að fá bréfið afhent en Dómstólasýslan hafnaði beiðninni með vísan til ákvæðis upplýsingalaga um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna.
Dómstólar Dómsmál Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Innlent Fleiri fréttir Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Sjá meira