Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin Sindri Sverrisson skrifar 16. janúar 2026 11:03 Slóvenía er eitt af liðunum sem gæti átt eftir að berjast við Ísland um sæti í undanúrslitum. EPA/ANTONIO BAT Liðin sem unnið hafa titlana á síðustu stórmótum í handbolta geta ekki mætt Íslandi fyrr en í fyrsta lagi í undanúrslitum, á EM karla í handbolta sem hófst í gær.
Hér að neðan má sjá leið liðanna á EM í undanúrslit mótsins, og þar með í leik um verðlaun á mótinu. Auðvitað er enginn rauður dregill í boði en flestir eru sammála um að Ísland, Svíþjóð og fleiri lið á „hægri væng“ mótsins hafi haft heppnina með sér þegar dregið var í riðla. Tvö lið komast úr hverjum riðli og mynda tvo sex liða milliriðla, þaðan sem tvö lið komast svo úr hvorum milliriðli í undanúrslit. Íslandi spáð velgengni Sérfræðingar hafa spáð því að íslenska liðið komist í undanúrslitin og veðbankar eru einnig á því að Svíþjóð og Ísland séu líklegust til þess að komast þangað, af þeim liðum sem endað gætu í milliriðli 2 á mótinu. Ríkjandi Ólympíu- og heimsmeistarar Danmerkur, ríkjandi Evrópumeistarar Frakklands og Ólympíusilfurdrengir Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi, fara allir í milliriðil 1, ásamt til að mynda Spáni, Portúgal og Noregi, nema einhver þessara liða falli óvænt snemma úr leik. Ísland gæti því ekki mögulega mætt neinu af þessum liðum fyrr en í undanúrslitum. Taka strákarnir tvö stig með sér? Fyrsta verkefni Íslands er hins vegar að komast áfram úr F-riðlinum í Kristianstad, helst með tvö stig með sér. Liðið mætir Ítalíu í dag, Póllandi á sunnudag og Ungverjalandi næsta þriðjudag. Ef Ísland kemst áfram í milliriðil taka við fjórir leikir til viðbótar dagana 23., 25., 27. og 28. janúar, í Malmö. Ef allt gengur upp koma helstu keppinautar Íslands í milliriðli, um tvö laus sæti í undanúrslitum, til með að verða Svíþjóð, Króatía og Slóvenía, auk Ungverjalands. Sem sagt engir aukvisar, þó að allra sterkustu liðin séu „hinu megin“ í mótinu. Svíar hlutu til að mynda brons á síðasta EM og verða á heimavelli fram að undanúrslitum, Króatarnir hans Dags Sigurðssonar fengu silfur á HM fyrir tæpu ári, og Slóvenar fóru í undanúrslit á síðustu Ólympíuleikum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir „Geri mér vonir um að þetta verði mótið þar sem allt smellur“ „Það er bara fín tilfinning að vera orðinn einn af gömlu mönnunum í landsliðinu. Ég hef svo sem verið það í nokkur ár en tilfinningin er góð,“ segir hornamaðurinn Bjarki Már Elísson sem þarf að axla ábyrgð innan sem utan vallar á EM í Svíþjóð. 16. janúar 2026 10:00 Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir „Það er kominn fiðringur og spenningur,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, fyrir fyrsta leik liðsins á EM sem fram fer í dag. 16. janúar 2026 08:30 Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Bennet Wiegert, þjálfari þýska stórliðsins Magdeburgar, telur að fjölmennari þjóðir geti lært mikið af starfinu sem unnið er hér á Íslandi í kringum handbolta. Hann dáist að því hversu margir heimsklassa leikmenn koma frá Íslandi og væri til í að koma hingað til lands í starfsþjálfun. 16. janúar 2026 07:32 „Þetta er ekki flókið“ Ómar Ingi Magnússon er landsliðsfyrirliði Íslands á komandi Evrópumóti sem hefst með leik við Ítali á morgun. Hann er klár í slaginn. 15. janúar 2026 23:15 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Sjá meira
„Geri mér vonir um að þetta verði mótið þar sem allt smellur“ „Það er bara fín tilfinning að vera orðinn einn af gömlu mönnunum í landsliðinu. Ég hef svo sem verið það í nokkur ár en tilfinningin er góð,“ segir hornamaðurinn Bjarki Már Elísson sem þarf að axla ábyrgð innan sem utan vallar á EM í Svíþjóð. 16. janúar 2026 10:00
Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir „Það er kominn fiðringur og spenningur,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, fyrir fyrsta leik liðsins á EM sem fram fer í dag. 16. janúar 2026 08:30
Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Bennet Wiegert, þjálfari þýska stórliðsins Magdeburgar, telur að fjölmennari þjóðir geti lært mikið af starfinu sem unnið er hér á Íslandi í kringum handbolta. Hann dáist að því hversu margir heimsklassa leikmenn koma frá Íslandi og væri til í að koma hingað til lands í starfsþjálfun. 16. janúar 2026 07:32
„Þetta er ekki flókið“ Ómar Ingi Magnússon er landsliðsfyrirliði Íslands á komandi Evrópumóti sem hefst með leik við Ítali á morgun. Hann er klár í slaginn. 15. janúar 2026 23:15