Innherji

Vogunar­sjóðirnir sem eru með stærstu skort­stöðurnar í bréfum Al­vot­ech

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman er forstjóri, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech. 
Róbert Wessman er forstjóri, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech. 

Tveir erlendir vogunarsjóðir eru með hvað stærstu hreinu skortstöðurnar í hlutabréfum Alvotech, sem hafa hríðfallið í verði undanfarnar vikur og mánuði, og er samanlagt umfang þeirra sem nemur meira en einu prósenti af útgefnu hlutafé líftæknilyfjafélagsins.


Tengdar fréttir

Mæla með kaupum og segja bréf Al­vot­ech „á af­slætti í saman­burði við keppi­nauta“

Í tveimur nýjum erlendum greiningum er mælt sem fyrr með kaupum í Alvotech en væntingar eru um góða rekstrarniðurstöðu á seinni árshelmingi vegna áfangagreiðslna og sölutekna af nýjum hliðstæðum félagsins á markað. Sænski bankinn SEB gerir ráð fyrir að tekjur og rekstrarhagnaður á árinu verði við efri mörk útgefinnar afkomuspár og segir hlutabréf Alvotech núna á afslætti í samanburði við sambærileg líftæknilyfjafélög.

Lækka tals­vert verðmatið en ráð­leggja fjár­festum áfram að kaupa í Al­vot­ech

Greinendur bandarísks fjárfestingabanka hafa lækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech en ráðleggja fjárfestum samt að bæta við sig bréfum og telja að búið sé að verðleggja að fullu inn í hlutabréfaverð félagsins – og meira til – áskoranir til skamms tíma sem komu til vegna athugasemda FDA við framleiðsluaðstöðuna.

Lækka veru­lega verðmat sitt á Al­vot­ech og búast við töfum á öðrum hliðstæðum

Ákvörðun FDA að veita Alvotech ekki markaðsleyfi að svo stöddu fyrir hliðstæðu sína við Simponi mun að líkindum einnig valda töfum á að aðrar nýjar væntanlegar líftæknilyfjahliðstæður þess fái samþykki í Bandaríkjunum, að sögn erlendra greinenda, sem hafa sumir hverjir lækkað verðmat sitt á félaginu talsvert. Tafirnar gætu haft nokkur áhrif á tekjuvöxt og framlegð næsta árs og þrengt að samkeppnisstöðu Alvotech ef keppinautar félagsins komast með sínar hliðstæður fyrr á markað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×