Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. desember 2025 07:01 Machado komst heil á höldnu til Noregs í gær. AP/Lise Aserud María Corina Machado, handhafi friðarverðlauna Nóbels, birtist á svölum Nóbels-svítunnar á Grand Hotel í Osló í nótt, aðeins klukkustundum eftir að dóttir hennar tók á móti verðlaununum fyrir hennar hönd.
Fregnir herma að henni hafi tekist að komast frá Venesúela með bát, eftir að hafa verið í felum í höfuðborginni Caracas í um ellefu mánuði. Stuðningsmenn hennar fögnuðu fyrir utan hótelið og sungu þjóðsöng Venesúela, og var launað fyrir þegar Machado birtist fyrir utan og klifraði yfir tálma til að faðma þá. Vont veður er sagt hafa orðið þess valdandi að Machado tókst ekki að komast til Osló áður en verðlaunaafhendingin fór fram. Jørgen Watne Frydnes, formaður Nóbels-verðlaunanefndarinnar, notaði tækifærið í gærkvöldi og hvatti Nicolás Maduro til að láta af völdum í Venesúela. Maduro situr enn í embætti forseta þrátt fyrir að hafa tapað kosningunum í fyrra, þar sem bandamaður Machado, Edmundo González, bar sigur úr býtum. Bandaríkjastjórn leggur nú mikinn þrýsting á Maduro að fara frá en Maduro virðist staðráðinn í að sitja sem fastast og sagði í vikunni að landsmenn þyrftu að búa sig undir að „brjóta tennur“ Norður-Ameríku, ef til þess kæmi.
Venesúela Noregur Bandaríkin Nóbelsverðlaun Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Sjá meira