„Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. desember 2025 13:52 Eldsvöðinn varð í sjö íbúðaturnum Wang Fuk í Hong Kong þann 26. nóvember síðastliðinn. Getty/VCG Hlutabréfaverð í danska þjónustufyrirtækinu ISS hrapaði í dönsku kauphöllinni í dag en lækkunin er rakin til stórbrunans í Hong Kong í síðustu viku. Um 7% lækkun er rakin til dótturfélags ISS, EastPoint í Hong Kong, sem ku hafa gegnt lykilhlutverki við framkvæmdir í byggingunum sem sagðar eru hafa orsakað eldsvoðann sem varð yfir 150 manns að bana.
DR hefur eftir dönsku fréttaveitunni Ritzau, sem vísar í umfjöllun South China Monitoring Post, að dótturfélag ISS hafi farið með umsjón bygginganna sem fuðruðu upp í ljósum logum í síðustu viku. Fyrirtækið hafi verið meðvitað um að brunavarnarkerfi væri í ólagi en áður hefur komið fram í fréttum að brunabjalla hafi ekki þjónað tilætluðum tilgangi þegar eldurinn kom upp. Stjórnvöld hafa grun um að eldfimur efniviður hafi verið notaður við viðhaldsframkvæmdir í byggingunum sem skýri hvers vegna eldurinn hafi breiðst svo hratt út. Reuters vitnar í yfirlýsingu frá ISS þar sem segi að dótturfélagið í Hong Kong, ISS EastPoint Properties Limited, hafi veitt eigendum byggingarinnar stuðning við umsjón bygginganna. Hins vegar hafi fyrirtækið ekki komið að vali á verktökum þeim sem önnuðust framkvæmdirnar né heldur haft eftirliti með störfum þeirra með reglubundnum hætti. Fyrirtækið styðji ákvörðun stjórnvalda í Hong Kong um stofnun rannsóknarnefndar vegna eldsvoðans, sem er sá mannskæðasti í borginni í fleiri áratugi. ISS kveðst munu vinna með stjórnvöldum við rannsókn stjórnvalda. Engu að síður hefur atburðurinn haft umtalsverð áhrif á gengi danska félagsins.
Hong Kong Danmörk Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira