Óvænt verðbólguhjöðnun leiði vonandi til vaxtalækkunar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. nóvember 2025 13:03 Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir verðbólgumælingu fyrir nóvembermánuð hafa komið á óvart. Afsláttardagar höfðu sitt að segja. Vísir/Vilhelm Verðbólga hjaðnar hressilega milli mánaða og mælist nú 3,7 prósent. Hagfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka segir mælinguna koma á óvart og haldi þróunin áfram líti allt út fyrir að stýrivextir haldi áfram að lækka.
Verðbólga lækkar úr 4,3 prósentum í 3,7 og hefur ekki mælist minni í fimm ár. Hún er þannig komin niður fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. „Vísitala neysluverðs lækkaði þvert á spár í morgun þannig að ég viðurkenni að þetta kom á óvart en mjög jákvæð tíðindi,“ segir Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka. Fram kemur í tilkynningu á vef Hagstofunnar að þyngst vegi flugfargjöld, sem lækkuðu um 14,3 prósent. Eins virðast afsláttardagar í nóvember hafa haft sitt að segja. „Það virðist sem að afsláttardagar í nóvember hafi haft sitt að segja, til dæmis var dagur einhleypra akkúrat inni í verðmælingarviku Hagstofunnar þannig að það hefur haft sitt að segja í þessari mælingu. Það getur samt verið skammgóður vermir því þau munu líklega ganga til baka eitthvað í næsta mánuði.“ Hún segist þó bjartsýnni í dag en í gær á verðbólguhorfur. Gera má ráð fyrir að vísitalan gangi eitthvað til baka í næsta mánuði, eins og hún gerir iðulega í desember. Mælingin sé þó mjög jákvæð. „Við hljótum öll að hafa fundið vel fyrir mikilli verðbólgu síðustu ár og viljum öll að hún komist við markmið sem fyrst. Einnig getur þetta haft áhrif á stýrivaxtaákvarðanir,“ segir Bergþóra. „Við sjáum líka að undirliggjandi verðbólga er að lækka, sem er jákvætt, og Seðlabankinn horfir mkið á undirliggjandi verðbólgu til að meta verðbólguþrýstinginn. Þetta gæti orðið til þess að þau haldi áfram að lækka vexti í næstu ákvörðunum.“
Verðlag Seðlabankinn Efnahagsmál Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Kallar eftir aukafundi peningastefnunefndar Formaður Starfsgreinasambandsins segir óvænta hjöðnun verðbólgu um 0,6 prósentustig milli mánaða frábær tíðindi, þrátt fyrir að hún sé til marks um það hversu mikið er að hægjast á íslensku efnahagslífi. Hann kallar skýlaust eftir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands komi saman á aukafundi og lækki stýrivexti. 27. nóvember 2025 10:39 Verðbólga hjaðnar hressilega Verðbólga mælist nú 3,7 prósent eftir að hafa mælst 4,3 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga hefur ekki verið minni síðan í desember árið 2020. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2025, er 658,2 stig og lækkar um 0,48 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 523,4 stig og lækkar um 0,81 prósent frá október 2025. 27. nóvember 2025 09:03 Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Sjá meira
Kallar eftir aukafundi peningastefnunefndar Formaður Starfsgreinasambandsins segir óvænta hjöðnun verðbólgu um 0,6 prósentustig milli mánaða frábær tíðindi, þrátt fyrir að hún sé til marks um það hversu mikið er að hægjast á íslensku efnahagslífi. Hann kallar skýlaust eftir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands komi saman á aukafundi og lækki stýrivexti. 27. nóvember 2025 10:39
Verðbólga hjaðnar hressilega Verðbólga mælist nú 3,7 prósent eftir að hafa mælst 4,3 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga hefur ekki verið minni síðan í desember árið 2020. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2025, er 658,2 stig og lækkar um 0,48 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 523,4 stig og lækkar um 0,81 prósent frá október 2025. 27. nóvember 2025 09:03