Haukar við toppinn og HM-farar fögnuðu á Selfossi Sindri Sverrisson skrifar 7. nóvember 2025 20:00 Landsliðskonan Alfa Brá Hagalín er lykilmaður í liði Fram og á leið á HM. Fram færði sig upp fyrir Hauka í 5. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld, með sigri á Selfossi, og Haukar eru við toppinn í Olís-deild karla eftir sigur á nýliðum Þórs frá Akureyri.
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín og Katrín Anna Ásmundsdóttir, sem fyrr í dag voru valdar í HM-hóp Íslands sem brátt heldur til Þýskalands, gátu áfram glaðst í kvöld með 29-27 útisigri Fram gegn Selfossi. Þær eru á leið á sitt fyrsta HM. Framkonur voru 16-13 yfir í hálfleik og virtust svo hafa stungið af í seinni hálfleiknum, þegar þær náðu átta marka forskoti, en heimakonur gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn í tvö mörk þegar enn voru tvær og hálf mínúta eftir. Fleiri mörk voru hins vegar ekki skoruð. Alfa Brá og Dagmar Guðrún Pálsdóttir voru markahæstar hjá Fram með átta mörk en Harpa María Friðgeirsdóttir skoraði fimm og Katrín Anna þrjú. Hjá Selfossi var Hulda Dís Þrastardóttir markahæst með sex mörk en Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Eva Lind Tyrfingsdóttir skoruðu fimm mörk hver og Mia Kristin Syverud fjögur. Þórsarar aldrei langt undan Haukar jöfnuðu Aftureldingu að stigum á toppi Olís-deildar karla í kvöld og eru liðin með 14 stig hvort eftir níu leiki. Þórsarar eru með sex stig í tíunda sæti. Hergeir Grímsson skoraði sex mörk í kvöld.Haukar Haukar höfðu frumkvæðið allan leikinn en gestirnir frá Akureyri voru aldrei langt undan og náðu til að mynda að minnka muninn í eitt mark þegar skammt var eftir, fyrst í 29-28 og svo aftur í 30-29. Haukarnir voru hins vegar sterkari á lokasprettinum og unnu 35-31. Skarphéðinn Ívar Einarsson var markahæstur hjá Haukum með sjö mörk og þeir Hergeir Grímsson og Birkir Snær Steinsson skoruðu sex mörk hvor. Hjá Þór var Brynjar Hólm Grétarsson markahæstur með átta mörk, Arnór Þorri Þorsteinsson skoraði sjö og Oddur Gretarsson sex.
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Sjá meira