Eigandi skrifstofu í Kringlunni þarf að borga fyrir auglýsingar Árni Sæberg skrifar 29. október 2025 15:51 Deila um auglýsingakostnað Kringlunnar fór alla leið í Hæstarétt. Vísir/Vilhelm Eigandi skrifstofuhúsnæðis í Kringlunni þarf að taka þátt í kostnaði vegna auglýsinga- og kynningarstarfsemi Kringlunnar, þrátt fyrir að hafa í engu notið góðs af henni.
Þetta var niðurstaða Hæstaréttar, sem kvað upp dóm í málinu klukkan 14. Áður hafði Landsréttur komist að þeirri niðurstöðu að Kringlan þyrfti að endurgreiða kostnaðinn, að því leyti sem eigandi skrifstofunnar hafði gert fyrirvara um greiðsluskyldu sína, alls um 820 þúsund krónur. Í dómi Hæstaréttar segir að einkahlutafélagið IK holdings ehf. hefði höfðað mál á hendur Rekstrarfélagi Kringlunnar, húsfélagi verslunarmiðstöðvarinnar, til endurgreiðslu þess hluta húsgjalda sem það hafði innt af hendi á tilteknu tímabili sem þátt í kostnaði húsfélagsins vegna auglýsinga- og kynningarstarfsemi. IK holdings er í eigu hjónanna Ingva Týs Tómassonar og Kristínar Sigríðar Gunnarsdóttur. Ingvi Týr er sonur Tómasar A. Tómassonar, sem kenndur er við Hamborgarabúllu Tómasar. IK holdings er meðal eigenda Búllunnar. Hvorki út fyrir lagaheimild né í andstöðu við stjórnarskrá Í dóminum segir að Hæstiréttur hafi ekki fallist á það með IK holdings að með ákvæði í samþykktum húsfélagsins um að þessi kostnaður teldist sameiginlegur hefði það farið út fyrir heimildir sínar samkvæmt lögum um fjöleignarhús. Að sama skapi hafi ekki verið litið svo á að jafnræðis og meðalhófs hefði ekki verið gætt gagnvart IK holdings við ákvörðun húsgjalda að þessu leyti þannig að í bága færi við réttindi einkahlutafélagsins samkvæmt félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Að fenginni þeirri niðurstöðu hafi komið til skoðunar hvort þinglýsing samþykkta húsfélagsins hefði verið skilyrði fyrir því að IK holdings yrði bundið af fyrrnefndu ákvæði þeirra. Ekki hafi verið fallist á að tilvísanir í þinglýstum eignaskiptayfirlýsingum hefðu með einhverjum hætti fullnægt kröfum laga til þinglýsingar samþykkta húsfélags. Hefði mátt vita af kostnaðinum Á hinn bóginn hafi Hæstiréttur talið sannað að fyrirsvarsmaður IK holdings hefði þegar við kaup á eignarhluta félagsins vitað eða mátt vita að samþykktir húsfélagsins mæltu efnislega fyrir um að kostnaður af auglýsinga- og kynningarstarfsemi væri borinn uppi af eigendum sameiginlega og skipt samkvæmt ákveðnum hlutfallstölum. Gæti IK holdings því ekki borið fyrir sig að ákvæði samþykktanna á þessa leið hefðu ekki gildi gagnvart því. Húsfélagið hafi því verið sýknað af kröfum IK holdings um endurgreiðslu. IK holdings var gert að greiða Kringlunni þrjár milljónir króna í málskostnað á öllum dómstigum.
Auglýsinga- og markaðsmál Húsnæðismál Dómsmál Kringlan Reykjavík Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira