Uppgjörið: Stjarnan - ÍR 91-93 | ÍR skellti meisturunum Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 24. október 2025 20:56 Stjarnan - ÍR Bónus karla 8-liða Vor 2025 ÍR gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Stjörnunnar, 91-93, er liðin mættust í Bónus-deild karla í kvöld. Stjarnan byrjaði leikinn töluvert betur og leit allt út fyrir einstefnuleik Stjörnunnar í fyrsta leikhluta. ÍR-ingar náðu hægt og rólega að snúa við stöðunni og lauk fyrri hálfleik með tveggja stiga mun 46-44. Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleiknum og kepptust liðin við að ná frumkvæðinu. ÍR leiddi með sex stigum eftir þrjá leikhluta, 64-70. Fjórði leikhluti var kaflaskiptur og spennustigið var hátt. Liðin skiptu því á milli sér að taka yfir leikinn en að lokum náðu ÍR-ingar að sigla sigrinum heim, 91-93. Atvik leiksins Viðsnúningur ÍR-inga í öðrum leikhluta að mínu mati. Ég hélt að þetta væri að stefna í svipaðan leik og á móti Tindastóli í síðustu umferð. Stjörnur og skúrkar Dimitrios Klonaras var með tvennuna í kvöld. 23 stig og 18 fráköst. Jacob Falko svaraði heldur betur fyrir leikinn í síðustu umferð. Í kvöld var hann með 25 stig og 7 stoðsendingar. Seth Christian Le Day var einnig með tvennu í kvöld. 22 stig og 20 fráköst. Luka Gasic var stigahæstur í liði Stjörnunnar með 24 stig. Stemning og umgjörð Lífleg stemning var í ÞG-höllinni í Garðabæ og umgjörðin mjög góð. Heyrðist hressilega í stuðningsmönnum beggja liða. Dómarar Sigmundur Már, Jóhannes Páll og Sigurbaldur sáu um dómgæsluna í kvöld. Ekkert út á dómgæsluna að setja. Viðtöl Jacob Falko: „Mikill endurkomusigur fyrir okkur“ Jacob Falko, leikmaður ÍR, var frábær í dag. „Þetta var mikill endurkomusigur fyrir okkur. Sérstaklega eftir leikinn í síðustu viku gegn Tindastóli, sá leikur var algjörlega óásættanlegur af okkar hálfu.“ „Í dag komum við með rétta hugarfarið. Við byrjuðum augljóslega ekki vel, lentum í smá vandræðum, en við sýndum þann baráttuvilja að koma til baka og ná sigrinum.“ Borce Ilievski: „Fyrsti leikhluti, hann var hræðilegur.“ Ótrúleg endurkoma hjá ÍR-liðinu eftir skellinn í síðustu umferð. „Fyrsti leikhluti hjá okkar var slæmur, hann var hræðilegur, ég hélt á augnabliki að við værum að endurtaka leikinn gegn Tindastóli.“ „Strákarnir sem komu inn af bekknum, eins og Aron, sem fékk ekki að spila mikið í þessum leik. Þeir breyttu taktinum í leiknum.“ „Byrjunarliðsmennirnir í liðinu áttuðu sig á í kjölfarið að við gætum vel keppt við Stjörnuna, þannig tókst okkur að koma til baka inn í leikinn í öðrum leikhluta.“ Bónus-deild karla Stjarnan ÍR