Heimilin þurfi að undirbúa sig fyrir að það reyni á svigrúm þeirra Lovísa Arnardóttir skrifar 22. október 2025 23:02 Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. Vísir/Sigurjón Björn Berg fjármálaráðgjafi segir verðlag hafa hækkað töluvert undanfarið og ólíklegt sé að þær hækkanir gangi til baka þótt verðbólga hafi hjaðnað. Hjaðnandi verðbólga þýði aðeins að verðlag hækki ekki eins hratt og áður. Verðbólgan sé nú komin í fjögur prósent og fólki líði mögulega þá eins og verðlag eigi að batna en það þýði í raun aðeins að verðlag hækki ekki eins hratt og áður. „
Þessar hækkanir sem hafa komið á hverju ári þær leggjast hver ofan á aðra og búa til þessa verð sem við búum við í dag og verður náttúrulega svona.“ Hann segir að síðustu tólf mánuði hafi verð á hefðbundinni innkaupakörfu hækkað að meðaltali um fjögur prósent en það sé misjafnt eftir vörum hvað þær hækka mikið. Hann segir undirvísitölur geta sagt mikið til um hverja vöru og hversu mikið til dæmis brauð, egg eða aðrar matvörur hafa hækkað miðað við aðrar vörur. Með því að líta á þessar tölur sé hægt að fá staðfestingu fyrir einhverri tilfinningu um það hvort einhver ákveðin vara sé að hækka meira en önnur. „Það er þannig að langflest er orðið dýrara en hækkunin er mismikil,“ segir Björn sem ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann segir verðbólgu bíta með tvennum hætti. Það sé annars vegar í gegnum verðtryggingu á innlánum og útlánum. Það sé ekkert hægt að gera í því en að þegar komi að því að búa í þessu verðlagi snúist málið meira um það hvernig það sé gert. „Við gerðum þetta töluvert eftir hrun. Við sáum nágranna okkar í Skandinavíu gera þetta eftir Covid þegar verðbólga þar fór á fljúgandi siglingu og húseignakostnaður hækkaði til muna. Þá neyddust heimili til að forgangsraða með öðrum hætti vegna þess að þú gast ekki haft kalt inni hjá þér. Það varð hita húsin en það hafði hækkað geysilega.“ Fólk endurraði í innkaupakerruna í verðbólgu Björn segir að við þessar aðstæður raði fólk með öðrum hætti í innkaupakerruna. Að jafnaði hafi kerran hækkað um fjögur prósent síðustu tólf mánuði en fólk geti kosið að setja færri hluti í körfuna og verslað minna, eða hliðrað neyslunni til. „Þetta gerir margt fólk því það er óþægilegt að taka á sig þessar miklu hækkanir ef kaupmátturinn fylgir ekki.“ Við slíkar aðstæður fari fólk til dæmis sjaldnar í klippingu, skipti um kjöttegundir eða gerir vikumatseðil og segi upp áskriftum. Hann segir fólk eiga að aðlaga sig að aðstæðum og þess vegna sé talað um efnahagssveiflur. Það sé útlit fyrir að við séum að fara inn í mjög kaldan vetur þar sem gott er fyrir heimilin að undirbúa sig fyrir það að það reyni á svigrúm þeirra, og að það þurfi að búa það til. Björn segir verðbólgu geri skýra sýn á raunverulegt verðmæti gruggugt og þannig byrgi hún fólki sýn hvert sé raunverulegt verðmæti. Við slíkar aðstæður sé erfiðara að vera virkur neytandi, að prútta og að segja nei við einhverju sem er mögulega of dýrt. Þegar verðbólgan sé há hætti fólki til að sætta sig bara við hátt verðlag. Lækki aðeins um 0,25 prósent á næsta ári Björn fór aðeins yfir þjóðhagsspá Landsbankans til 2028 líka sem birt var í morgun. Hann segir hana ekki mjög bjarta, bankinn spái enn töluverðri einkaneyslu og krafti í heimilum. Það stefni í þokkaleg jól. Bankinn spái einnig litlum hagvexti, eða hóflegum, en að það sem hann hafi rekið augun í sé að bankinn spái því að verðbólga muni ekki hjaðna frekar og að samhliða því muni Seðlabankinn ekki lækka stýrivexti meir en um 0,25 prósent á næsta ári. „Við verðum áfram í þessu verðbólguástandi, áfram í þessum háu vöxtum, ef þessi spá gengur eftir.“ Björn ræddi einnig verðtryggingu og umræðu um hana síðustu daga. Umræðan sé málefnaleg og hann segist ánægður með það. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni að ofan.
Fjármál heimilisins Efnahagsmál Verðlag Reykjavík síðdegis Íslenska krónan Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Allt að 1500 króna munur á jólabókunum milli verslana Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Breyttur opnunartími hjá Sorpu Hægt að spara háar fjárhæðir í jólainnkaupum Verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum Jólakjötið töluvert dýrara í ár „Þetta er bara algjörlega galið“ Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Jólabækurnar nær alltaf ódýrastar í Bónus Kostnaður við tónleika útskýri hátt miðaverð Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Vara við listeríu í rifnu grísakjöti Bíða enn eftir tæpri milljón í endurgreiðslu eftir fall Play Tilefni til að varast svik á svörtum föstudegi Kalla inn silung og bleikju vegna listeríu Fordæmalaus skortur á skötu Hafði betur eftir að hafa fengið of stór gleraugu í hendurnar Vilja fresta því að slökkva á 2G og 3G sendum Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Craft Burger Kitchen hafa lokað dyrunum í síðasta skipti Kalla inn aspas í bitum frá Ora Hækka árgjöld kreditkorta í fyrsta sinn í sjö ár Sjá meira