Innherji

Klára yfir fimm milljarða út­boð eftir á­huga stórra danskra líf­eyriss­sjóða

Hörður Ægisson skrifar
Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, segir að Grænland sé ein síðasta landfræðilega ókannaða auðlindasvæði heims. „Við áttum okkur á því að til þess að nýta þann möguleika og byggja upp nauðsynlega innviði þarf að beita heildstæðri nálgun sem spannar allt virðiskeðjuna í námuvinnslu. Í kjölfar mikils áhuga frá virtum og stórum stofnanafjárfestum höfum við ákveðið að ráðast í þetta hlutafjárútboð til að styrkja getu okkar til að hrinda í framkvæmd stefnu okkar: að byggja upp vaxandi og sjálfbært námuvinnslufyrirtæki og skapa arfleifð á Grænlandi.“

Amaroq Minerals verður stærsti leyfishafinn á Grænlandi eftir að hafa bætt við sig tveimur rannsóknarleyfum á svæðinu og samhliða því boðað til yfir þrjátíu milljóna punda hlutafjárútboðs, en stórir danskir lífeyrissjóðir eru umsvifamestu þátttakendurnir í þeirri fjármögnun, samkvæmt heimildum Innherja. Hlutabréfaverð Amaroq hefur farið lækkandi að undanförnu en áskriftargengið í útboðinu, sem er farið af stað með eftir áhuga frá erlendum stofnafjárfestum, er aðeins lítillega undir markaðsverði félagsins við lokun markaða í dag.

Tengdar fréttir

Niður­stöður fyrstu borana í Nanoq gefa til kynna „hágæða-gull­svæði“

Niðurstöður úr rannsóknarborunum Amaroq Minerals í Nanoq á Suður-Grænland sýndu fram á háan styrkleika gulls á svæðinu og undirstrikar mikla möguleika leyfisins, að sögn forstjóra auðlindafyrirtækisins. Frekari boranir eru áformaðar á næsta ári en fyrstu niðurstöður gefa vísbendingar um að hægt sé að finna gull í magni sem má telja í milljónum únsa.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×