Formúla 1

Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewis Hamilton er brattur þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu.
Lewis Hamilton er brattur þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu. getty/Alessio Morgese

Lewis Hamilton hefur ekki fengið neina draumabyrjun hjá Ferrari eftir vistaskiptin frá Mercedes. Hann segir þó of snemmt að dæma sig og árangurinn hjá Ferrari eftir nokkrar keppnir. Betur fari að gera það eftir nokkur ár.

Eftir sex keppnir er Hamilton í 7. sæti í keppni ökuþóra með 41 stig, níutíu stigum á eftir Oscar Piastri sem er á toppnum. Ferrari er í 4. sæti í keppni bílasmiða með 94 stig, 152 stigum á eftir McLaren.

Sjöunda keppni tímabilsins fer fram í Imola um helgina og er fyrsti kappaksturinn í Evrópu á þessu ári. Síðan tekur Mónakó-kappaksturinn við og svo Spánarkappaksturinn. Hamilton vill ekki gera of mikið úr mikilvægi næstu þriggja keppna.

„Ég set ekki allt á þessar þrjár keppnir. Ef við ættum þrjár slæmar keppnir væri vonin enn til staðar. Ég held að það verði ekki þannig en ég er bara að segja að við hengjum ekki allt á eina keppni,“ sagði Hamilton.

„Ég dæmi ekki árangur okkar eftir nokkrar keppnir, hálft eða eitt tímabil. Talið við mig þegar ferli mínum hjá Ferrari lýkur, eftir nokkur ár hjá Ferrari skulum við tala um hvað við höfum gert. Þá getum við horft til baka og sagt hvort við höfum náð árangri eða ekki.“

Hinn fertugi Hamilton hefur ekki endað ofar en í 5. sæti í keppni á þessu tímabili. Hann varð áttundi í síðasta kappakstri, í Miami. Hamilton hefur gengið betur í sprettkeppnum og vann slíka í Kína í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×