Alþingi kemur saman á ný eftir páskafrí Atli Ísleifsson skrifar 28. apríl 2025 06:36 Fyrsti þingfundur eftir páskafrí er á dagskrá klukkan 15 í dag. Vísir/Anton Brink Alþingi kemur aftur saman í dag eftir páskafrí en síðasta þingfundur fór fram 10. apríl síðastliðinn. Samkvæmt dagskrá hefst þingfundur klukkan 15 og eru óundirbúnar fyrirspurnir fyrsta mál á dagskrá.
Á vef Alþingis má sjá að fundað verði í þremur fastanefndum – fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og velferðarnefnd – fyrir hádegi. Klukkan 11 mun Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, svo funda með formönnum þingflokka og klukkan 11:45 kemur forsætisnefnd saman til fundar. Þingfundur verður svo settur klukkan 15. Þeir ráðherrar sem verða til svara í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag eru Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra. Á dagskrá þingfundar er meðal annars kosning í stjórn Ríkisútvarpsins til eins árs. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir í samtali við Morgunblaðið í morgun að ríkisstjórnin vinni áfram eftir þingmálaskrá sinni og að ekki sé gert ráð fyrir að fresta þurfi afgreiðslu neinna frumvarpa fyrir þinglok í júní.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira