„Get ekki sagt að þetta hafi verið auðvelt“ Siggeir Ævarsson skrifar 26. apríl 2025 20:34 Lore Devos var frábær í kvöld á báðum endum vallarins Vísir/Pawel Cieslikiewicz Lore Devos var frábær í liði Hauka í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaviðureign Bónus-deildar kvenna með 79-64 sigri á Val. Devos skoraði 32 stig og stal sex boltum og var hreinlega óstöðvandi á löngum köflum.
Hún vildi þó ekki meina að stigin 32 hafi komið auðveldlega, Valur hafi spilað góða vörn en hún þakkaði liðsfélögum sínum fyrir hvernig hún spilaði í kvöld. „Ég get ekki sagt að þetta hafi verið auðvelt. Valskonur létu mig hafa fyrir þessu en liðsfélagar mínir voru duglegar að láta boltann ganga og fundu mig á réttum stöðum.“ Það hefði mögulega verið auðvelt að mæta værukær í leikinn í kvöld í stöðunni 2-0 en Devos sagði að það hefði aldrei komið til greina. „Við vissum alveg eftir síðasta leik sem var mjög jafn í lokin að þær myndu mæta í kvöld með mikla orku og baráttu sem þær gerðu. Sem betur fer náðum við að þétta raðirnar eftir því sem leið á og sóttum sigurinn.“ Haukar mæta annað hvort Keflavík eða Njarðvík í úrslitum en Devos sagðist ekki eiga neina draumaandstæðinga í úrslitum. „Nei, í rauninni ekki. Ég vona bara að besta liðið vinni og við mætum svo því liði og spilum okkar leik og höldum áfram að berjast.“ Það er laugardagskvöld og sennilega freistandi fyrir Hauka að fagna en Devos sagði að það yrði lítið um fagnarlæti í bili, enda björninn ekki unninn enn. „Alls ekki. Við munum halda einbeitingu. Hugsa vel um okkur og safna kröftum. Við megum auðvitað fagna því að vera á leið í úrslit en við verðum áfram með fókus á næsta leik.“
Bónus-deild kvenna Körfubolti Haukar Mest lesið KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Fótbolti Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Körfubolti Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Íslenski boltinn Spjótin standa að Jóni Degi og Freyr stígur inn á milli Fótbolti Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Enski boltinn Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Enski boltinn Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Sjá meira