Ráðherra og valdníðsla í hans nafni Örn Pálmason skrifar 15. apríl 2025 08:00 Opið bréf til ráð og embættismanna Meira um málefnum Kvikmyndaskóla Íslands. Ég er maður sem tel að einkaframtak eigi fullan rétt á sér. Finnst alltaf holur hljómur þegar hátekjumenn á framfæri ríkisins tala niðrandi og jafnvel ásakandi um einkaframtak og getu þess til verðmætasköpunar og góðra verka. Gengur jafnvel svo langt að það er lagður steinn í götu og hraðahindranir byggðar í nafni réttlætingar á hættum einkaframtaks. Ég hef ekkert á móti ríkisrekstri. Ekki neinum rekstri yfir höfuð ef hann laðar fram það besta í einstaklingum fjöldanum til hagsbóta. Ríkinu hefur ekkert gengið sérstaklega vel að reka stofnanir þar sem mennskan og geta einstaklings blómstrar þó mjög margt hafi sem betur fer gengið vel. Ég ætla ekki að fara í neina upptalningu á því sem miður hefur farið en minni bara á sanngirnisbætur sem hafa verið greiddar ítrekað vegna stórkostlegra mistaka þegar menn í ríkiskerfinu standa í stjórnun á rekstri sem þeir hafa ekki nálægð við eða kunnáttu til að stjórna. Enn er verið að skoða þau mál og von á meiri sanngirnisbótum úr ríkissjóði. Enn eru menn á því að talnaglöggur menn inn í ráðuneyti séu bestir í að stýra málum og koma í veg fyrir ímyndaðan eða hugsanlegan hagnað einkaframtaksins á kostnað skattgreiðenda. Mín skoðun er að ríkið eigi að einbeita sér að góðu skilvirku regluverki, sem vinnur á jafnréttisgrundvelli og aftengi persónuleg afskipti því þar blómstar spillingin. Byggja góðan grunn að réttlátum leikvelli, samfélagi og borgurum til heilla. Hvað kemur þetta Kvikmyndaskóla Íslands við. Fyrir mörgum árum fékk æskuvinur minn Böðvar Bjarki Pétursson áhuga á kvikmyndagerð eftir að hafa unnið við gerð kvikmynda. Hann var ungur, hæfileikaríkur og uppfullur af hugmyndum og kvikmyndum. Hann sá líka fram í tímann. Þetta var í kringum 1990 og hann fór að tala um að kvikmynda og sköpunar iðnaðurinn ætti eftir að verða stór og að það þurfi sérmenntað fólk sem geti starfað í þessum iðnaði. Það var ekki mikinn hljómgrunn að fá við hans hugmyndum innan ríkisgeirans þá, en framsýnir menn innan kvikmyndageirans áttuðu sig á þessu og voru til í að leggja málinu lið. Ég tek fram að Böðvar Bjarki er ekki stóreignamaður eða fjárfestir heldur var þetta framkvæmt á ímyndunaraflinu og sköpunarkraftinum. Það fæddist frumkvöðull, kraftmikill frumkvöðull sem gekk af stað og hefur háð margar orrustur við kerfi sem er í eðli sínu ekki skapandi. Ég vísa í fyrri grein mína um sögu Kvikmyndaskóla Íslands þar sem má lesa að 1992 byrjaði Böðvar Bjarki námskeiðahald. Það var gert af miklum vanefndum en eldmóðurinn var mikil og fólk hreifst með. Það er galdurinn við Kvikmyndaskólann og frumkvöðulinn. Sjaldan hef hef ég séð embættismenn hrífa fólk með sér nema þá kannski í kóveit enda var stunduð kvikmyndagerð við útsendingu upplýsingafunda. Án efa einhverjir nemendur frá Kvikmyndaskólanum unnið við þær útsendingar. Eftir þetta frumkvöðulsstarf hafa yfir 600 manns aflað sér menntunar til að sinna þeim fjölmörgu verkefnum í kvikmynda og þáttagerð sem koma hingað til lands erlendis frá ásamt innlendum verkefnum. Ég fullyrði að í yfir 90% af öllum kvikmyndaverkefnum í dag má finna einhvern eða einhverja af starfsmönnum þar með menntun frá Kvikmyndaskólanum. Ef þetta fólk stæði ekki starfsgreininni til boða þá kæmu framleiðendur með starfsfólk erlendis frá. Böðvar Bjarki Pétursson hefur unnið þrekvirki ásamt fjöldanum öllum af hæfileikaríku fólki, hinni sönnu grasrót kvikmyndageirans. Rekstrarfélag fer í þrot. Það er vegna áfalla í rekstri og er tæknilegt atriði í viðskiptum. Svo má skoða ástæður og læra af þeim. Ég hefði miklu meiri áhyggjur ef rekstrarfélagið blómstraði en skólastarfið væri ómögulegt. Því er ekki svo farið í Kvikmyndaskólanum og sést í samstöðu kennara og nemanda og hvaða hug þau bera til stofnunarinnar. Skólinn er í fullu fjöri, þarf bara sínar réttmætu viðurkenningar, samninga og námslána rétt. Að tala niður það frumkvöðulsstarf sem Kvikmyndaskóli Íslands er, er hreint með ólíkindum og ekki til sóma fyrir ráðamenn né embættismenn. Núna horfir Böðvar Bjarki fram á gjaldþrot og að lífsstarfið sé brotið niður og þeir sem vilja leggja þessu máli lið fá yfirlæti frá ráðamönnum. Menna-og barnamálaráðherra segir að honum komi þetta ekki við á sama tíma og það á að stofna til kennslu á einni helgi í Tækniskólanum á grunni Kvikmyndaskólans í krafti hans ráðuneytis. Það er allt í einu góð hugmynd að keyra Kvikmyndaskóla Ísland í þrot og stofna (líknar)deild í Tækniskólanum á leifunum. Rektor Tækniskólans gengur jafnvel svo langt að tilkynna í fréttum RÚV að þeir vilji bjóða kennurum að koma í viðtal en ekkert samtal né samstarf hefur farið fram á þeim 1,5 mánuði sem þetta fólk hefur haldið skólanum gangandi án allrar aðstoðar. Það kom tölvupóstur til kennara eftir viðtalið. Ekki fagleg vinnubrögð. Held að það sé ráð að skipta út þeim sem stýrir aðgerðum á vegum ráðuneytisins barna og menntamála. Kvikmyndaskóli Íslands hefur skilað góðu starfi og getur gert það áfram ef heift og fáviska ráða ekki för. Þessi aðgerð föstudaginn 11/4 2025 gegn Kvikmyndaskóla íslands afhjúpar vondan hug til stofnunarinnar sem hefur verið vandamál lengi í samskiptum. Tækniskólinn getur vel farið sínu fram og gleður mig að Tækniskólinn vilji mennta fólk til starfa í kvikmyndagerð. Einnig frábært að Listaháskólinn sé með sitt nám. Þörfin er vissulega til staðar og samkeppni er góð en það er óþarfi að eyðileggja það sem hefur verið vel gert. Þeir sem stjórna þessum aðgerðum á vegum ráðuneytis mennta og barnamála hafa ekki komið og kynnt sér sérstöðu Kvikmyndaskólans né átt í neimun viðræðum við starfsmenn eða nemendur en það væri ágætis byrjun. Í burðarliðum er stofnun samtaka hollvina Kvikmyndaskóla Íslands og er undirskriftasöfnun á ísland. is . Þegar þetta er skrifað hafa á annað þúsund undirskriftir borist. Það er vitneskja út í þjóðfélaginu fyrir hvað Kvikmyndaskóli Íslands stendur þó svo að mennta og barnamálaráðuneytið eigi í erfiðleikum með að átta sig . Hendum þessari vitleysu út í hafsauga og vinnum saman. Að endingu langar mig að biðja Ingu Sæland hæstvirtum félags og húsnæðismálaráðherra að bjóða hæstvirtum Guðmund Inga Kristinssyni í kaffi í kvöld og syngja fyrir hann lag John Lennon “Power to the People”. Ná upp andanum til góðra verka og afhenda boltann yfir til menningar-nýsköpunar og háskólaráðuneytis því þar á Kvikmyndaskóli Íslands heima. Virðingarfyllst, Örn Pálmason, fyrrum stjórnarmaður Kvikmyndaskóla Íslands menntastofnunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni Kvikmyndaskóla Íslands Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar