Onana ekki með gegn Newcastle Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2025 09:31 André Onana hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga. getty/Joe Prior André Onana mun ekki verja mark Manchester United gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Onana gerði sig sekan um slæm mistök í báðum mörkum Lyon í leiknum gegn United í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Fyrir leikinn fór Onana mikinn í viðtölum og sagði að United væri með mun sterkara lið en Lyon. Nemanja Matic, fyrrverandi leikmaður United og núverandi leikmaður Lyon, var ekki ánægður með þessi ummæli og sagði að Onana væri einn versti markvörður í sögu United. Honum væri því hollast að hafa sig hægan. Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur samkvæmt enskum fjölmiðlum ákveðið að nota Onana ekki í leiknum gegn Newcastle í dag. Altay Bayındır mun standa milli stanganna í leiknum á St. James' Park í dag og leika þar með sinn fyrsta deildarleik fyrir United. Bayındır kom til félagsins frá Fenerbahce og hefur leikið sjö leiki fyrir það. Onana hefur leikið alla deildarleiki United síðan félagið keypti hann frá Inter sumarið 2023 en breyting verður á því í dag. United er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 37 stig eftir 31 leik. Newcastle er í 7. sætinu með 53 stig.
Enski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Sjá meira