Mannlegi rektorinn Silja Bára Arnar Pálsson skrifar 9. mars 2025 08:01 Fyrir dyrum stendur kjör til rektors Háskóla Íslands. Fimm frambærilegir Íslendingar og tveir erlendir umsækjendur eru í kjöri. Mest hefur heyrst af málefnum og áherslum íslendinganna, og ljóst er að þau eru öll hæf og atorkusöm. Öll gætu þau sinnt starfi rektors HÍ af heillindum og samviskusemi. En í kosningum þarf að velja og ég vel Silju Báru Ómarsdóttur. Næsta rektors bíða margvísleg viðfangsefni til að efla HÍ sem mennta- og rannsóknarstofnun fyrir íslenskt samfélag og fyrirtæki. Það felur bæði í sér að sækja aukið fjármagn og efla innra starf skólans. Mikilvægasta áskorunin er sú að Íslenskir háskólar eru undirfjármagnaðir miðað við OECD og norðurlöndin - sem við viljum helst miða okkur við. Það hefur verið stefna ríkisins um nokkuð skeið að fjármagna háskólana eins og norðurlönd, en við höfum fjarlægst það markmið síðustu 5 ár. Sveltistefnan hefur þau áhrif að námsframboð minnkar, námskeið eru kennd ódýrar (færri tímar, færri verkefni eða minni snerting við samfélagið eða náttúruna) og laun háskólakennara hafa lækkað (hlutfalllega miðað við sambærilega hópa). Þetta er neikvæð þróun sem hefur þegar leitt til rýrnunar á gæðum námsins, og veldur m.a. því að sérfræðingar sækja ekki um vinnu við HÍ eða afþakka stöður vegna lágra launa. Eina leiðin til að leysa vandann er átak til að auka vitund almennings og stjórnmálamanna á hlutverki og mikilvægi háskóla fyrir íslenskt samfélag, bæði menntunar og rannsókna. Langtíma vanfjármögnun íslenskra háskóla leiðir til verri menntunar sem grefur undan velsæld, framleiðni og takmarkar framfarir samfélags okkar næstu áratugi. Einnig þarf að taka á málum innan HÍ. Þar er margvíslegur kerfislægur vandi, sem e.t.v. er erfitt fyrir leikmenn að henda reiður á. Í stuttu máli býr fjárhagslegt deililíkan til misskiptingu milli eininga skólans, mismunur í fjármögnun rannsóknarstofnana gerir það líka (sumar eru vel studdar en aðrar illa, jafnvel þótt þær séu fræðilega áþekkar), og einnig verðlaunar öfugsnúið vinnumatskerfi kennara sem stunda ákveðnar gerðir rannsókna, og refsar hinum. Treyst er á einfaldar mælistikur, bæði í útdeilingu á fjármagni innan skólans og til hans (nýja líkan ráðuneytis). En talning á birtum rannsóknargreinum er meingölluð mælistika. Frá aldamótum hefur HÍ breyst í alvöru rannsóknarháskóla en vöxturinn er ekki án verkja. Á meðan fjöldi nemenda hefur tvöfaldast frá aldamótum, hefur föstum kennurum ekki fjölgað nema um þriðjung. Ýmsa fleiri annmarka mætti taka til, eins og umhverfi erlendra nemenda og kennara, sem og aðbúnað grunnnema og nemendafélaga. Háskólar eru mikilvægir fyrir þjálfun næstu kynslóða, og vettvangar grunnrannsókna og opinnar umræðu um mál sem brenna á landsmönnum og mannkyninu í heild. Þar má nefna loftslags- og umhverfisógnir sem geta leitt til hruns siðmenningar manna, en einnig málefni minnihlutahópa, samtvinnun þjóða og menningarheima, og nýlegar sviptingar í alþjóðamálum. Silja Bára fjallar um ytri aðstæður háskóla og innri mál, sem og hugmyndir sínar til úrbóta á vefsíðunni www.siljabara.is. Hún býr yfir mörgum mannkostum sem ég tel heppilega í rektor HÍ. Hún er skýr, yfirveguð og rökvís, jafnt í kennslustofu, tveggja manna tali og sjónvarpsviðtölum. Sérstaklega vegur þungt reynsla hennar af opinberum vettvangi, sem og vinna við stefnumótun og samninga. Gildismat hennar er mér mikilvægt, því hún setur samfélag nemenda og kennara í forgrunn. Hún þekkir vel órétti sem jaðarhópar eru beittir og jafnréttisbaráttu í víðum skilningi (t.d. hópa sem er mismunað kynferðis, kynhneigðar og uppruna). Reynsla Silju er breið, hún hefur t.d. verið stundakennari við HÍ, formaður Rauða krossins á Íslandi og fulltrúi í Háskólaráði. Á vettvangi Háskólaráðs mótmælti hún því að sáttmálasjóður var lagður niður, sem er enn eitt dæmi um hvernig vanfjármögnun hefur skert starfsemi skólans. Rektors þarf að geta talað skýrt og af sannfæringu, sameinað ólíka hópa með grunngildi þekkingarsamfélagsins að leiðarljósi. Háskólar eiga að vera opinn vettvangur samtals og skoðanaskipta, frjótt og frjálst umhverfi þar sem vandamál eru krufin, metin og lausnir þróaðar. Mýtan um sterka foringjann á ekki við um háskóla. Ég tel meira vert að HÍ hafi skýra, greinda og vandaða manneskju í stöðu rektors sem getur þjónað samfélagi háskólanemenda, kennara og annarra starfsmanna. Silja Bára er slík manneskja og sem rektor getur hún bæði eflt HÍ og íslenskt samfélag. Höfundur er líffræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rektorskjör við Háskóla Íslands Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar