Kæra vinkona Margrét Pála María Ösp Ómarsdóttir og Tinna Björg Kristinsdóttir skrifa 6. febrúar 2025 17:31 Takk fyrir! Takk fyrir að helga líf þitt barnæsku og fjölskyldum þessa lands. Síðustu 35 árin hefur þér tekist að skapa heildstæða og mannræktandi menntastefnu sem stuðlar að velferð barna og fjölskyldufólks í hvívetna. Þér hefur tekist að skapa faglegt lærdómssamfélag meðal jafningja, þar sem starfsfólk fær valdeflandi þjálfun og verkfæri sem tryggir sameiginlega sýn á það hvernig vinna skal að markmiðum skólastofnanna hér á landi samkvæmt lögum. Þeirri sameiginlegu sýn að allt sem við veljum að bjóða börnum upp á skuli fyrst og fremst þjóna þeirra hagsmunum, sem birtist skýrt og kjarnað í fyrstu meginreglu allra þeirra skóla sem starfa samkvæmt stefnunni. Í þeim skólum sem stefnan þín er iðkuð af nákvæmni og sátt fá börn að alast upp í kærleiksríku, lýðræðislegu og skapandi námsumhverfi. Þau fá tækifæri til að þroska vitsmuni sína í gegnum leik, þar sem opinn efniviður og hæglæti í skipulagi og umhverfi stuðlar að litlu hljóð- og sjónáreiti sem býður upp á að þau upplifi þá galdra sem flæði í skapandi leik í raun og veru er. Takk fyrir að sýna kjark með því að synda á móti samfélagslegum straumum sem hafa mótandi áhrif á stöðu einstaklinga út frá kyni, efnahag og þjóðerni. Fyrir það að móta stefnu sem leggur áherslu á að kenna ungum börnum að virða mörk hvers annars, og ekki síst að koma auga á og virða sín eigin landamæri, algjörlega óháð þessum samfélagslegu þáttum. Innan stefnunnar þinnar fá einstaklingar að blómstra á eigin forsendum og á gífurlega mikilvæg uppbótarvinna sér stað þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Takk fyrir að kenna okkur nægjusemi, sjálfbærni og seiglu og fyrir að leggja áherslu á mikilvægi þess að börnum sé boðið upp á náttúruleg leiksvæði utandyra, sem og efnivið úr náttúrulegum efnum innandyra. Fyrir það að koma auga á og standa með þeirri staðreynd að börn geta kennt okkur fullorðna fólkinu svo margt og að fyrirfram gefnar lausnir í leikefni geti í raun haft hamlandi áhrif á leik þeirra og þróun hans. Þú ert einstök fyrirmynd kæra Margrét Pála, ferð fyrir sem leiðtogi með hugrekki og náungakærleik að vopni. Viðgengst óréttlæti, beitir þú kröftum þínum til að sporna gegn því. Þú leitar lausna sem virka fyrir öll börn og þar af leiðandi mannlegri tilvist; því börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum og með því að byggja þeim traustan grunn eru meiri líkur á að framtíðin verði þeim björt. Í þínum skólum er gleði fagmennska, þarfir barna eru í fyrsta sæti og ef eitthvað í skipulaginu er á skjön við það, er það látið fjúka. Farsæld barna í sinni tærustu mynd. Þér er annt um starfsfólk innan stefnunnar sem öll gegna starfi kennara á einn eða annan hátt. Skipulag og umhverfi tryggja fagleg afköst og veitir fólki tækifæri á lífsstílsgæðum sem víða er vöntun á. Lausnir þegar kemur að undirbúningstímum og vinnutímastyttingu eru m.a. partur af því og er stór þáttur í starfsánægju kennara sem innan skóla stefnunnar starfa. Það gerir þátttaka þeirra í faglegu lærdómssamfélagi á hverjum degi einnig og sú upplifun að tilheyra heild þar sem valdeflandi nálgun styrkir leiðtogahæfni og starfsþróun allra. Með aukinni starfsánægju eykst skuldbinding til vinnustaðarins og öll njóta. Nálgun þín í málefnum barna og fjölskyldna er skólabókardæmi um það hvernig hægt er að sinna hlutverki riddara kærleikans af ástríðu og eldmóð sem svo skapar kjöraðstæður til samfélagslegrar sjálfbærni. Í þínum skólum mæta smáar og stórar manneskjur hlýlegu viðmóti þar sem orðræðan ýtir undir jákvæð og virðingarík samskipti. Í sameiningu láta skólarnir gott af sér leiða undir formerkjum stefnunnar. Kæra vinkona Margrét Pála, takk fyrir að gefa okkur Hjallastefnuna. Þínar vinkonur, María Ösp og Tinna Björg, leikskólastýrur í Árbæ á Selfossi Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Leikskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Æji nei innflytjendur Davíð Aron Routley Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller Skoðun Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga? Erling Valur Ingason Skoðun Skoðun Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Kafli eitt: Tómlæti Íslendinga Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Þegar líða fer að jólum Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Meistaragráða í lífsreynslu Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld, Óskar á heima hér! Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Dvel þú í draumahöll Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson skrifar Skoðun Umhverfi, heilsa og skólamáltíðir Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Æji nei innflytjendur Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Samstaða, kjarkur og þor Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson skrifar Skoðun Yfirfull fangelsi, brostið kerfi Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller skrifar Skoðun Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga? Erling Valur Ingason skrifar Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar Skoðun Endurnýjun hugarfarsins Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Góð vísa... Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu? Einar Magnússon skrifar Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar Skoðun Fristund.is fyrir öll - líka eldra fólk Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem skeytir engu Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar Skoðun Fólkið sem gleymdist í Grindavík Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar
Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar
Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar