Hafsteinn fer á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. desember 2024 18:27 Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha hefur skorað 36 mörk fyrir Gróttu í Olís-deildinni í vetur. vísir/diego Ljóst er að Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha, leikmaður Gróttu, fer með landsliði Grænhöfðaeyja á heimsmeistaramótið í handbolta í næsta mánuði. Grænhöfðaeyjar eru með Íslandi í riðli.
Hafsteinn er í tuttugu manna HM-hópi Grænhöfðaeyja sem hefur verið valinn. Sextán leikmenn mega vera á skýrslu í hverjum leik. Hafsteinn lék sína fyrstu landsleiki fyrir Grænhöfðaeyjar í síðasta mánuði. Liðið tók þá þátt á móti í Kúveit og mætti heimamönnum, Barein og Túnis. Faðir Hafsteins er frá Grænhöfðaeyjum en fyrir um ári kom það til tals að hann myndi spila með landsliði þjóðarinnar. „Fyrir síðustu jól heyrðu þeir í pabba mínum. Við töluðum svo saman í nokkra mánuði og síðan í sumar fór ég til Grænhöfðaeyja og fékk ríkisborgararéttinn þar. Ég var þar í tíu daga að græja pappíra og allt það. Eftir það kom ég heim og heyrði ég í þjálfaranum. Síðan var maður mættur þarna á mót í Kúveit í byrjun nóvember,“ sagði Hafsteinn í samtali við Vísi á dögunum. Sem fyrr sagði eru Grænhöfðaeyjar með Íslandi í riðli á HM sem hefst 14. janúar. Tveimur dögum síðar mætast liðin. Hafsteinn gæti þar mætt strákum sem hann spilaði með í yngri landsliðum Íslands. Auk Grænhöfðaeyja og Íslands eru Slóvenía og Kúba í G-riðli heimsmeistaramótsins. Hann verður leikinn í Zagreb í Króatíu. Þrjú efstu liðin komast áfram í milliriðil.
HM karla í handbolta 2025 Grænhöfðaeyjar Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti „Við fórum að spila alvöru körfubolta“ Sport Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira