Mikael Egill skoraði í grátlegu jafntefli gegn Juventus Smári Jökull Jónsson skrifar 14. desember 2024 21:43 Mikael Egill skoraði fyrra mark Venezia í dag og er hér að berjast gegn Timothy Weah. Vísir/Getty Mikael Egill Ellertsson skoraði fyrra mark Venezia þegar liðið gerði jafntefli við stórlið Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Botnlið Venezia var grátlega nálægt því að fara með sigur af hólmi.
Mikael Egill var í byrjunarliði Venezia í kvöld sem lenti snemma í brekku þegar Federico Gatti kom heimaliði Juventus í forystuna strax á 19. mínútu leiksins. Fyrir leikinn var Juventus í 6. sæti deildarinnar en Venezia í neðsta sætinu. Í síðari hálfleik náðu gestirnir að snúa við blaðinu. Mikael Egill jafnaði metin á 61. mínútu þegar hann skoraði með góðum skalla eftir sendingu frá Francesco Zampano. Þetta er annað mark Mikaels Egils í Serie A-deildinni á tímabilinu en hann skoraði einnig í 2-2 jafntefli gegn Monza fyrr á tímabilinu. Gestirnir í Venezia létu hins vegar ekki þar við sitja. Þeir náðu 2-1 forystu með marki Jay Idzes á 83. mínútu en Mikael Egill var tekinn af velli tveimur mínútum fyrr. Það stefndi allt í magnaðan sigur botnliðs Venezia en á síðustu sekúndum uppbótartímans jafnaði Dusan Vlahovic fyrir Juventus úr vítaspyrnu og tryggði liðinu jafntefli. Venezia er því áfram í botnsæti deildarinnar með 10 stig, jafnmörg stig og lið Monza. Juventus er áfram í 6. sæti með 28 stig. Mikael Egill verst gegn Dusan Vlahovic í leiknum í kvöld.Vísir/Getty
Ítalski boltinn Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Fleiri fréttir HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 Sjá meira