10 staðreyndir um verðbólgu og ríkisfjármál Konráð S. Guðjónsson skrifar 16. ágúst 2024 07:00 Síðustu ár hafa verið óvenju sveiflukennd í íslensku efnahagslífi: Fyrst kom heimsfaraldur með tilheyrandi niðursveiflu en síðan uppsveifla þar sem hagvöxtur var sá mesti í hálfa öld Fylgifiskurinn var lækkun vaxta og síðan hækkun í framhaldi af verðbólguskoti, sem enn er í rénun. Í almennri umræðu hafa spjótin beinst að ríkinu, sem út af fyrir sig er skiljanlegt. Það sem virðist til viðbótar hafa gerst er að einföldum staðreyndum um þróun mála og þekktum kenningum hagfræðinnar sé öllum snúið á hvolf til þess að gera ríkið alfarið ábyrgt fyrir verðbólgunni. Við viljum öll vinna bug á verðbólgunni, en með röngum sjúkdómsgreiningum mun það ekki takast. Því er mikilvægt að eftirfarandi komi fram: 1. Verðbólga er peningalegt fyrirbæri Einn stærsti lærdómurinn af verðbólguskoti síðustu ára er að orð Nóbelsverðlaunahagfræðingsins Milton Friedman í grein árið 1970 voru ekki eins úrelt og margir héldu. Hann sagði að: „Verðbólga er alltaf og allsstaðar peningalegt fyrirbæri að því leyti að hún verður aðeins til þegar peningamagn vex hraðar en verðmætin.” Margir hafa túlkað þetta með ýmsum hætti. Jafnvel haldið að verðbólgan sé ríkisfjármálalegt fyrirbæri. Friedman skýrir þetta hins vegar með því að þáttur ríkisfjármála fari aðallega eftir því hvort að ríkið fjármagnar sig með peningaprentun eða með sköttum/lántöku. Sé það hið síðarnefnda eru áhrifin augljóslega minni og sumpart óljós. Að lokum segir Friedman: “Í sjálfu sér, er [ríkisfjármálastefna] ekki mikilvæg fyrir verðbólgu.” Hvers vegna kenningum Friedmans hefur verið snúið á hvolf er ráðgáta. Mögulega er skýringin sú að það gleymist að sjálfstæðir seðlabankar litu ekki dagsins ljós fyrr en eftir 1970. Fram að því voru mörk stjórnar peninga- og ríksfjármála óljós eða engin. Því er ekki að heilsa á Íslandi í dag með sjálfstæðum Seðlabanka. 2. 55 % vöxtur peningamagns frá febrúar 2020 Sé litið til breiðrar skilgreiningar á peningamagni í umferð (M3) hefur það vaxið um 55% frá því að heimsfaraldurinn skall á árið 2020. Á fjórum árum er það í öllu samhengi mikið og talar ágætlega við kenningar Friedman um að verðbólgan sé peningalegt fyrirbæri. Málið er vissulega miklu flóknara, en má orða þannig að án of mikils vaxtar peningamagns sé viðvarandi verðbólga mjög ólíkleg. 3. Ríkissjóður hefur ekki prentað eina krónu Staðreyndin er aftur á móti sú að ríkissjóður hefur ekki prentað eina krónu af þeim 1.203 milljörðum króna sem hafa bæst við í umferð í tíð hennar. Ríkissjóður hefur vissulega verið rekin með halla en sá halli hefur verið fjármagnaður með lántöku sem býr ekki til nýja peninga heldur færir þá einfaldlega frá þeim sem spara og til ríkissjóðs. 4. Vöxtur peningamagns verður fyrst og fremst til í fjármálakerfinu Staðreynd málsins er sú að peningamagn í nútímanum verður að mestu leyti til í bankakerfinu. Fyrir því kunna að vera ýmsar ástæður, ekki síst utanaðkomandi. Síðustu ár eru þær augljósustu að vextir voru lágir, sem jók eftirspurn eftir lánsfé og peningum, enda eru vextir verðmiði peninga. Breytingar á heimildum bankanna til bindingar fjár í Seðlabankanum, eins og afnám 30 daga bundinna innlána sem hefur ekki enn verið komið á aftur, höfðu einnig áhrif. Peningastefnan getur leikið lykilhlutverk enda er góð ástæða fyrir því að meginmarkmið Seðlabankans samkvæmt lögum sé að stuðla að stöðugu verðlagi. Þar með er alls ekki sagt að allt sé einfaldlega Seðlabankanum að kenna, enda orsakir verðbólgu mun margslungnari en svo að þær ráðist alfarið af aðgerðum hans. 5. Peningalegt aðhald Seðlabankans var undir jafnvægi þar til fyrir ári síðan Þegar litið er til aðhalds Seðlabanka er venjan að horfa á raunvexti. Seðlabankinn sjálfur hefur metið að í jafnvægisástandi gætu þeir vexti verið í kringum 2%. Því vaxtastigi var hins vegar ekki náð fyrr en á seinni hluta árs 2023. Þegar verðbólga nálgaðist 10% árið 2022 voru vextir á hinn bóginn 4% sem felur í sér -6% raunvexti. Með öðrum orðum er aðhald peningastefnunnar að þessu leyti tiltölulega nýtilkomið. 6. Aðhald ríkissjóðs frá árinu 2022 Þegar horft er til aðhalds ríkisfjármála er á hinn bóginn litið til þess hvort að afkoma ríkissjóðs sé til þess fallin að auka eftirspurn í hagkerfinu eða ekki. Frá 2022 er það staðreynd að aðhaldið hefur verið aukið jafnt og þétt, á það hefur Seðlabankinn bent. Ríkið hefur því í þrjú ár lagst á móti hratt vaxandi eftirspurn sem hefur átt sinn þátt í þrálátri verðbólgu. Það má svo sífellt rökræða hvort ríkið hafi átt að gera meira eða minna, en það breytir ekki því að aðhald er aðhald. 7. 100 milljarða betri afkoma 3 ár í röð Aukið aðhald á líka þá birtingarmynd að ríkissjóði hefur verið snúið úr nærri 300 milljarða króna halla árið 2020 í aðeins 20 milljarða halla á síðasta ári. Sá viðsnúningur endurspeglar seigluna í íslensku efnahagslífi og að áætlun ríkisstjórnarinnar um að tryggja viðspyrnu hagkerfisins gekk fullkomlega upp. Raunar betur en nokkur þorði að vona því að afkoman hefur þrjú ár í röð verið um 100 milljörðum betri en fjárlög gerðu ráð fyrir. 8. Raunaukning ríkisútgjalda á mann: 3% Mikið hefur verið rætt um mikinn nafngjaldavöxt ríkissjóðs síðustu ár, en sú umræða ratar stundum inn á villigötur og virðist ganga út frá því að sá vöxtur sé alfarið orsök, en ekki afleiðing, mikillar verðbólgu. Staðreyndir málsins eru þær að þegar tekið hefur verið tillit til verðbólgu og mikilla launahækkana, sem byggja í grunninn á stefnumarkandi samningum á almennum vinnumarkaði, nemur raunútgjaldavöxtur ríkisins 3% frá árinu 2017 - 0,4% á ári. Það eru öll ósköpin. 9. Launahækkanir hafa áhrif á verðbólgu og nafnaukningu ríkisútgjalda Ef við sundurliðum nafnútgjaldaukningu ríkissjóðs nánar má áætla að meira en helming hans megi rekja til launahækkana og afleiddra áhrifa þeirra, sem og verðbólgu, á tilfærslur. Og hverjar hafa launahækkanir verið? Samtals hækkaði launakostnaður á vinnustund um 42% síðastliðin fjögur ár. Á Norðurlöndunum hafa hækkanirnar verið á bilinu 9% til 14%. Varla er algjör tilviljun að á sama tíma sé verðbólga á undanhaldi eða löngu horfin á Norðurlöndunum. Það má líka segja að ef miklar launhækkanir hefðu ekki áhrif á verðlag væri búið að finna upp eilífðarvél til að auka kaupmátt með launahækkunum um alla framtíð. Svo er augljóslega ekki. 10. Skuldir ríkissjóðs fara lækkandi næstu ár Stóra málið, líklega það mikilvægasta til framtíðar, er að staða ríkissjóðs er sterk þrátt fyrir ýmis áföll síðustu ára. Skuldir hins opinbera eru í meðallagi í alþjóðlegu samhengi og í nýrri fjármálaáætlun fer skuldahlutfall ríkissjóðs lækkandi. Síðustu ár hafa sýnt að viðráðanleg skuldastaða hjálpar gríðarlega ef áföll skella á og því mikilvægt að tryggja að skuldaþróun verði áfram sjálfbær. Að lokum Hér er því ekki haldið fram að ríkisfjármálin hafi ekki áhrif verðbólgu og vaxtastig í landinu og að ekkert sé hafið yfir gagnrýni síðustu ár og misseri. Aðhald er stjórnmálamönnum nauðsynlegt enda ábyrgð þeirra mikil. Áhrif ríkisfjármála á verðbólgu eru þó allt önnur og mögulega minni en margir virðast telja. Við þurfum að halda áfram á braut hæfilegs aðhalds í ríkis- og peningamálum og tryggja að nýir langtímakjarasamningar á almennum vinnumarkaði haldi. Þannig komumst við í dauðafæri til að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum. Ef Íslendingum er síðan alvara um að ná varanlegum verðstöðugleika og þar með vaxtastigi sem er sambærilegt þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við, er fyrsta skrefið að greina hvert vandamálið er. Rangfærslur um peningaprentun ríkissjóðs eða að einblína á ríkissjóð eins og að aðrir þættir skipti ekki máli eru hins vegar bein leið að því að halda áfram að hjakkast í sama farinu um ókomna tíð. Höfundur er efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar. Uppfært 20.8.2024 Í upphaflegri útgáfu greinarinnar sagði að peningamagn hefði vaxið 68 prósent frá því í febrúar 2020. Því hefur verið breytt í 55 prósent að beiðni höfundar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Konráð S. Guðjónsson Efnahagsmál Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Seðlabankinn Kjaramál Verðlag Rekstur hins opinbera Mest lesið Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun