Bóna bíla til að eiga fyrir Evrópukeppni Sindri Sverrisson skrifar 14. ágúst 2024 18:01 Haukakonur eru nýkomnar úr æfingaferð til Svíþjóðar þar sem þær undirbjuggu sig fyrir komandi átök í EHF-bikarnum og Olís-deildinni. @HaukarTopphandbolti Það er gömul saga og ný að kostnaðarsamt sé fyrir íslensk íþróttalið að taka þátt í Evrópukeppnum í handbolta. Haukakonur ætla að þrífa bíla um helgina til að safna fyrir sinni þátttöku.
Haukakonur snúa aftur til keppni í Evrópu í haust, eftir nokkurra ára hlé, eftir að hafa spilað til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð en tapað þar fyrir Val. Bæði liðin leika í EHF-bikarnum í haust og hefja keppni í 64-liða úrslitum í október. Haukar eiga fyrir höndum einvígi við Eupen frá Belgíu en Valskonur spila við Zalgiris Kaunas frá Litáen. Að því gefnu að ekki sé samið um að leika báða leiki í sama landi þá munu íslensku liðin byrja á að spila á útivelli helgina 5.-6. október og svo á heimavelli viku síðar. Haukakonur ætla nú að safna sér fyrir Evrópuleikjum sínum með því að bjóða upp á bílaþvott í Bónsvítunni, Dalshrauni 24 í Hafnarfirði, á laugardaginn. Í auglýsingu kemur fram að í þvottinum felist þrif að innan og utan, bón og tjöruhreinsun, og kostar þvotturinn 14.000 fyrir litla fólksbíla, 16.000 fyrir stóra fólksbíla og 18.000 fyrir jeppa og sendibíla. Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðu Hauka. Haukakonur eru nýkomnar úr æfingaferð til Skövde í Svíþjóð þar sem liðið tók þátt í Annliz Cup æfingamótinu og spilaði við Köbenhavn, Sävehof og Skövde, í undirbúningi fyrir Evrópukeppnina í vetur. Haukar hefja svo keppni í Olís-deildinni í næsta mánuði með leik við nýliða Selfoss en áætlað er að fyrsta umferð fari fram laugardaginn 7. september.
Olís-deild kvenna Haukar Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira