Innlent

Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifa
Jónas Yngvi og Jóhanna voru á ferðalagi með Lionsklúbbnum Dynk í gær þegar slysið varð. Sjálf sluppu þau með skrekkinn en aðrir voru ekki jafn lánsamir.
Jónas Yngvi og Jóhanna voru á ferðalagi með Lionsklúbbnum Dynk í gær þegar slysið varð. Sjálf sluppu þau með skrekkinn en aðrir voru ekki jafn lánsamir. Vísir/Magnús Hlynur

Hjón sem lentu í rútuslysi, ásamt 25 öðrum, í Rangárvallasýslu í gær segja ótrúlegt að ekki hafi farið verr. Þrír úr hópnum köstuðust út úr rútunni þegar hún valt en allir eru á batavegi. Þau segja þakklæti til viðbragðsaðila efst í huga.

Lionsklúbburinn Dynkur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi var á ferðalagi um Suðurlandið í gær þegar rútan, sem var á vegum Guðmundar Tyrfingssonar ehf., hafnaði utan vegar. Slysið varð á sjötta tímanum síðdegis á Rangárvallavegi við bæinn Stokkalæk, skammt norðaustur af Hvolsvelli.

„Bílstjórinn var að keyra upp brekku í átt að blindbeygju. Hann var að færa sig aðeins út í kantinn til að gefa pláss á vegi ef að kæmi umferð á móti. Þá gaf kanturinn sig og bíllinn var orðinn næstum stopp þegar hann byrjar að rúlla niður,“ segir Jónas Yngvi Ásgrímsson, félagi í Lionsklúbbnum Dynk. 

Rútan valt heilan hring og hafnaði í miðri brekkunni. 

„Það náttúrulega brá öllum. Það voru einhverjir sem að duttu út úr rútunni á meðan hún valt. Einhverjir festust, skorðuðust inni í bílnum en flestir gátu komist út af sjálfsdáðum,“ segir Jónas.

„Mér finnst ótrúlegt hvað var mikil yfirvegun þarna og ótrúlegt hvað voru komnir fljótt viðbragðsaðilar,“ bætir Jóhanna Lilja Arnardóttir, eiginkona Jónasar, við.

Allir 26 farþegar rútunnar og bílstjóri voru fluttir á sjúkrastofnun til aðhlynningar. Áverkar voru allt frá marblettum til annarra alvarlegri meiðsla. Sjö voru fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar á Landspítalann.

„Þeir sem verst fóru út úr þessu - rifbeinsbrotnuðu, einhver innvortis meiðsl, viðbeinsbrot - eru á batavegi. Eru á sjúkrahúsi í Reykjavík. Tveir einstaklingar,“ segir Jónas.

Fyrstu viðbragðsaðilar voru komnir á vettvang innan við tíu mínútna eftir að tilkynning barst. Jónas og Jóhanna segja þakklæti efst í huga.

„Það var svo frábært fólk sem tók á móti okkur. Sjúkraflutningamenn, heilsugæslufólkið og starfsfólkið á sjúkrahúsinu. Hjálparsveitirnar. Já, sérstakar þakkir til allra þessa. Þetta er ótrúlegt lið sem við eigum.“


Tengdar fréttir

Um­merki um að vegurinn hafi gefið sig

Ummerki eru um að vegur hafi gefið sig að hluta til þegar rúta með 27 manns innanborðs valt í Rangarþingi ytra í gær. Sjö voru fluttir á Landspítalann með þyrlum, en líðan þeirra er sögð stöðug.

Ræða mögu­lega við rútu­bíl­stjórann í dag

Lögregla mun mögulega í dag ræða við bílstjóra rútunnar sem valt á Rangárvallavegi við bæinn Stokkalæk í Rangárþingi ytra í gær. Rútan var á vegum Guðmundar Tyrfingssonar ehf. Um borð í rútunni voru 26 manns í hópferð. Allt Íslendingar. 

Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi

Rútuslys varð í Rangárvallasýslu rétt fyrir klukkan fimm í dag. Hópslysaáætlun var virkjuð í kjölfarið. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út og fluttu sjö til Reykjavíkur. Allir farþegar rútunnar hafa verið fluttir af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×