Upp­gjörið: Ís­land - Eist­land 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti maður vallarins í kvöld.
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti maður vallarins í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann vægast sagt öruggan sigur er liðið tók á móti Eistum í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2025. Lokatölur 50-25, en seinni leikur liðanna fer fram í Eistlandi á laugardaginn.

Íslenska liðið var miklu betra frá fyrstu mínútu og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins. Það varð því fljótt ljóst í hvað stefndi og Eistarnir tóku leikhlé strax á níundu mínútu í stöðunni 7-2, Íslandi í vil.

Vísir/Hulda Margrét

Gestirnir héldu í við íslensku strákana næstu mínútur eftir leikhléið, en íslenska liðið steig fljótt á bensíngjöfina á ný og náði tíu marka forskoti í fyrsta sinn í leiknum í stöðunni 19-9 eftir rétt rúmlega 20 mínútna leik.

Eistar tóku annað leikhlé skömmu eftir það, en einbeittir Íslendingar höfðu enn öll völd á vellinum og leiddu með 14 mörkum í hálfleik, staðan 26-12.

Vísir/Hulda Margrét

Síðari hálfleikur var svo beint framhald af þeim fyrri. Íslenska liðið gat leyft að slaka á, en virtist ekki hafa nokkurn áhuga á því.

Íslensku strákarnir tóku fótinn aldrei af bensíngjöfinni og náðu 20 marka forskoti í fyrsta sinn í leiknum í stöðunni 36-16 þegar enn voru rúmar 15 mínútur til leiksloka.

Vísir/Hulda Margrét

Það er í raun lítið meira sem hægt er að segja um síðari hálfleikinn sem hótaði því aldrei að verða neitt annað en kapphlaup Íslendinga um að vinna sem stærstan sigur. Kristallaðist það helst í því að síðasta mark leiksins skoraði liðið á sömu sekúndu og tíminn rann út þegar Orri Freyr Þorkelsson þaut fram í hraðaupphlaup og skoraði fimmtugasta mark Íslands.

Orri skorar síðasta mark leiksins á síðustu sekúndu leiksins.Vísir/Hulda Margrét

Atvik leiksins

Ekki er hægt að benda á eitthvað atvik sem breytti gangi leiksins, enda var leikurinn einstefna frá upphafi til enda. Mögulega væri hægt að benda á þær fjölmörgu sendingar fyrir aftan bak sem rötuðu á samherja í íslensku sókninni, eða mörk íslensku markvarðanna yfir allann völlinn. Þá var einnig virkilega skemmtilegt að sjá íslenska liðið keyra fram á síðustu stundu og skora fimmtugasta markið á síðustu sekúndu leiksins.

Vísir/Hulda Margrét

Stjörnur og skúrkar

Íslenska liðið er fullt af stjörnum eftir leik kvöldsins. Ómar Ingi Magnússon var líklega fremstur meðal jafningja með 12 mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson bætti við átta mörkum og sex stoðsendingum.

Vísir/Hulda Margrét

Dómararnir

Slóvakísku dómararnir Boris Mandak og Mario Rudinsky skiluðu sínu hlutverki vel, enda lítið sem ekkert um vafaatriði í leik sem þessum. Þeirra helsta framlag til leiksins var að minna Sigvalda Björn Guðjónsson ítrekað á að hann þyrfti að fara út fyrir punktalínu á meðan íslenska liðið tók aukakast. 

Stemning og umgjörð

Þrátt fyrir að leikur kvöldsins hafi verið svo gott sem búinn snemma í fyrri hálfleik verður ekkert tekið af stemningu áhorfenda í kvöld. Troðfull Laugardalshöll og stuðningsfólk íslenska liðsins lét vel í sér heyra allan tímann með Sérsveitina í fararbroddi.

Vísir/Hulda Margrét

Tengdar fréttir

„Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“

„Þetta er eitthvað sem þú reiknar ekki með sem þjálfari,“ sgaði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, eftir sannkallaðan stórsigur gegn Eistum í kvöld, 50-25.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira