Viðskipti innlent

Vilja gera til­raunir með orku­­fram­­leiðslu í geimnum á Ís­landi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Space Solar hefur hannað sólarorkuver sem staðsett verður á sporbaug um jörðu. Þar á það að virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með útvarpsbylgjum.
Space Solar hefur hannað sólarorkuver sem staðsett verður á sporbaug um jörðu. Þar á það að virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með útvarpsbylgjum.

Fyrstu tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum til nota á jörðu niðri gætu farið fram á Íslandi samkvæmt nýjum samstarfssamningi sem íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs hefur gert við breska fyrirtækið Space Solar.

Fram kemur í tilkynningu um málið að Space Solar hafi hannað sólarorkuver sem staðsett verði á sporbaug um jörðu. Þar eigi þau að virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með útvarpsbylgjum.

Ferlið útskýrt. 

„Jarðstöðvar taka við bylgjunum og umbreyta þeim í rafmagn og skila grænni endurnýjanlegri orku inn í orkukerfin. Geislar sólarinnar eru 13 sinnum öflugri fyrir utan lofthjúpinn en á jörðu niðri sem vegur upp á móti því orkutapi sem verður við flutning orkunnar til jarðar. Útvarpsbylgjurnar hafa ekki áhrif á lífríki jarðar og jarðstöðvarnar samanstanda af neti smárra loftneta sem hleypa vatni og sólarljósi í gegn og taka margfalt minna landsvæði en þarf undir vindorkuver eða hefðbundin sólarorkuver sem skapa sama magn orku,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Framleiða rafmagn nótt og dag

Þá kemur einnig fram að sólarorkuver Space Solar verði staðsett þannig að á þau falli ekki skuggi af jörðu. Því sé hægt að framleiða rafmagn dag og nótt og útvarpsbylgjurnar streymi til jarðar óháð veðurfari eða skýjahulu. Þetta sé því ný aðferð til að framleiða umhverfisvæna orku af þeirri tegund sem kölluð sé „baseload“ eða grunnafl.

Það sem helst hefur staði í vegi fyrir framþróun á þessu sviði er sagður kostnaður við að flytja hvert kíló af tækjakosti út í geim. Undanfarin ár hafi sá kostnaður fallið hratt og lækkað um 80 prósent á áfum árum. Það sé ekki síst vegna framfara á vettvangi fyrirtækisins Space X og að áætlanir séu uppi um að innan fárra ára verði kostnaðurinn við geimferðir einungis eitt til tvö prósent af því sem hann var fyrir tveimur áratugum.

Hundrað megavött

Space Solar stefnir á að framleiða 100 MW með þessum hætti innan næstu tíu ára og senda sólarorkuver út í geim á enn stærri skala skili tilraunaverkefnið tilætluðum árangri. Til samanburðar er uppsett afl Nesjavallavirkjunar 120 MW.

„Áhersla okkar hjá Transition Labs er að aðstoða loftslagsfrumkvöðla við að koma verkefnum sínum á legg; hratt og örugglega, og fjarlægja hindranir sem geta verið til staðar, með það að markmiði að skala þær upp svo fljótt sem mögulegt er til hagsbóta fyrir samfélag og umhverfið,” sagði Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Transition Labs á samstarfinu á fundi Orkuveitunnar í Hörpu í liðinni viku.

Kjartan fór yfir málið á viðburði í síðustu viku.

Davíð Helgason, stofnandi fyrirtækisins Unity, stofnaði fyrirtækið Transition Labs árið 2022, ásamt Kjartani Erni Ólafssyni, frumkvöðli og tæknifjárfesti. Markmið félagsins er að gera Ísland að suðupunkti loftslagsverkefna á heimsvísu.


Tengdar fréttir

Salome til Transition Labs

Salome Hallfreðsdóttir hefur gengið til liðs við loftslagsfyrirtækið Transition Labs og verður framkvæmdastjóri nýstofnaðs dótturfélags þess sem nefnist Röst sjávarrannsóknasetur ehf.

Davíð Helga­­son beinir sjónum sínum að lofts­lags­málum

Davíð Helgason, stofnandi fyrirtækisins Unity, hefur komið á fót fyrirtækinu Transition Labs, ásamt Kjartani Erni Ólafssyni, frumkvöðli og tæknifjárfesti. Markið félagsins er að gera Ísland að suðupunkti loftslagsverkefna á heimsvísu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×