Viðskipti innlent

Hulda hættir hjá Sýn og sviðið lagt niður

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Hulda Hallgrímsdóttir.
Hulda Hallgrímsdóttir.

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar og rekstrar hjá Sýn hf., hefur óskað eftir að láta af störfum. Ákveðið var í kjölfarið að ráðast í skipulagsbreytingar og leggja sviðið niður. Verkefni sviðsins verða flutt á aðra stjórnendur.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Sýn.

„Hulda hefur leitt grundvallar breytingar á tækniumhverfi Sýnar og stýrt þróun á nýjum þjónustulausnum fyrir viðskiptavini Sýnar frá því hún hóf störf hjá félaginu í janúar 2023. Við þökkum Huldu fyrir mikilvægt framlag í þágu félagsins og óskum henni velfarnaðar,“ segir í tilkynningunni.

„Sýn er frábært fyrirtæki á mikilli sóknar og breytingarvegferð þar sem ytra umhverfið er á stöðugri hreyfingu. Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki eru að fara í gegnum stórar tæknibyltingar og á sama tíma í mjög harðri samkeppni í krefjandi rekstrarumhverfi, það á sérstaklega við hjá Sýn,“ er haft eftir Huldu. 

„Á síðustu misserum hefur fyrirtækið gert róttækar breytingar á ferlum, tækni og skipulagi ásamt því að kaupa ný fyrirtæki og selja frá sér innviði. Þessar breytingar eru liður í þeirri vegferð að styrkja helstu rekstrareiningar félagsins með það að markmiði að byggja undir tekjustoðir framtíðar. Ég er ákaflega stolt af þeim árangri sem hefur náðst ásamt starfsfólki félagsins sem er vakið og sofið yfir upplifun viðskiptavina. Ég óska félaginu alls hins besta og þakka kærlega fyrir samstarfið.“

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Kristín kveður Sýn

Sýn og Kristín Friðgeirsdóttir hafa gert samkomulag um að Kristín láti af störfum sem fjármálastjóri félagsins. Kristín hefur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2021.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×